151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

skerðing kennslu í framhaldsskólum.

[15:39]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (U):

Herra forseti. Einn hópur samfélagsins hefur, ólíkt mörgum samfélagshópum og hagsmunahópum, látið lítið í sér heyra vegna þeirrar röskunar sem Covid-19 faraldurinn hefur valdið. Það eru framhaldsskólanemar sem þurfa að búa við miklar skerðingar á hefðbundinni kennslu. Framhaldsskólanemendur voru 22.644 þann 1. október sl. Strax í upphafi haustannar máttu þessir nemendur búa við skerðingar á námsfyrirkomulagi sínu þegar boðið var upp á blöndu af staðkennslu og fjarkennslu. Nú erum við í fimmtu vikunni af einungis fjarkennslu fyrir þennan nemendahóp og búið er að ákveða að öll haustönnin verði í fjarkennslu. Tölur og vísbendingar gefa til kynna að strax sé farið að bera á brottfalli framhaldsskólanema, sem eru mjög alvarleg tíðindi því að brottfall íslenskra framhaldsskólanema var það hæsta á Norðurlöndum fyrir kórónuveirufaraldurinn, eða 19,8%. Þetta álag bætist við álagið sem þessi nemendahópur hefur líka mátt þola vegna styttingar framhaldsskólanámsins niður í þrjú ár, eins og m.a. félag framhaldsskólanema hefur ályktað um.

Þess vegna langar mig til að spyrja hæstv. menntamálaráðherra um það hvernig hægt er að bæta nemendum þetta upp. Er hæstv. menntamálaráðherra með einhvers konar aðgerðaáætlun til að finna leiðir til að auka fjármagn, til að bjóða upp á sumarnámskeið eða aukaár? Aðgerðir menntamálaráðherra og menntamálayfirvalda þegar kemur að grunnskólum eru góðar og hafa reynst vel til að halda þeim gangandi. Og þær eru nauðsynlegar líka. En tekur hæstv. ráðherra undir það með mér að málefni framhaldsskóla og nemendanna þar verði að vera í algjörum forgangi þegar afléttingar á sóttvarnaaðgerðum hefjast? Mig langar til að heyra frá hæstv. ráðherra hvort hún geti tryggt það með einhverjum ráðum.