151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

skerðing kennslu í framhaldsskólum.

[15:40]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir þær áherslur sem hv. þingmaður nefndi hér, að málefni framhaldsskólanema verði í algjörum forgangi þegar við getum farið að létta á sóttvörnum. Það er það mál sem stendur mér næst þessa dagana og ég er vakin og sofin yfir því, í orðsins fyllstu merkingu. Okkur hefur tekist mjög vel að skipuleggja skólahald á leik- og grunnskólastiginu með þrotlausri vinnu til að ná utan um það. En hins vegar hafa þær sóttvarnaráðstafanir sem boðaðar hafa verið af sóttvarnayfirvöldum gert það aðeins erfiðara á framhaldsskólastiginu. Við höfum verið að vinna með ýmsar útfærslur á því hvernig við gætum liðkað til. Til að mynda komum við með grímurnar á sínum tíma en svo þurfti því miður að fara í hertar aðgerðir. Ég tel að við þurfum að gera enn betur jafnvel þó að við höldum skólahaldi á framhaldsskólastiginu gangandi. Verknámið er bara nýfarið í fjarkennslu. Það hefur verið í gangi allan tímann og líka listnámið, en bóklegt nám hefur því miður verið í meira fjarnámi en ég tel að sé æskilegt.

Ég er sammála hv. þingmanni að við erum komin að ákveðnum þolmörkum hvað þetta varðar, þannig að þetta er í algjörum forgangi. Ég tel nauðsynlegt að framhaldsskólinn og háskólinn geti starfað nánast burt séð frá því hver gangurinn í veirunni er. Við þurfum að búa til þannig kerfi að það gangi upp eins og við höfum gert á grunnskólastiginu, og við verðum að nýta okkur þá þekkingu og hvernig það hefur komið út.