skerðing kennslu í framhaldsskólum.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir þetta svar. Ég fagna því hversu mikla áherslu ráðherra leggur á að þessi hópur nemenda skuli vera í algerum forgangi. Ég vona og tek undir með ráðherra að því leyti að þessi hópur verði í algerum forgangi þegar við förum að sjá léttingu á sóttvarnaaðgerðum.
Mér er líka, og eflaust hæstv. ráðherra sömuleiðis, umhugað um einmitt líðan nemenda. Geðheilsa íslenskra ungmenna hefur því miður mælst í rannsóknum viðkvæmari en annars staðar. Við það bætist skortur framhaldsskólanemenda á félagslegri virkni og kvíðavaldandi aðstæður vegna kórónuveirufaraldursins og óvissu sem við könnumst líklega öll við að einhverju marki. En það er grafalvarleg staða ef við förum að sjá ungt fólk hverfa úr námi og langtímaáhrifa þess mun gæta víða í samfélaginu. Mig langar að heyra einmitt hugmyndir að leiðum hjá hæstv. ráðherra um það hvernig hún (Forseti hringir.) telur að hægt sé að koma í veg fyrir brottfall þessara hópa og koma í veg fyrir að það verði meira en raunin er.