151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

skerðing kennslu í framhaldsskólum.

[15:44]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Þetta er stærsta viðfangsefnið, ekki bara til skamms tíma heldur einnig lengri tíma vegna þess að þeir nemendur sem hverfa frá námi núna eru líklegir til að gera það í nokkurn tíma og þjóðhagslegt tap af slíku er mjög mikið. Það sem við höfum gert og gerðum strax í vor er að fylgjast gríðarlega vel með brotthvarfinu og það er ánægjulegt að segja frá því að í vor var það minna en það hefur áður verið.

Ég vil líka benda hv. þingmanni á þær nýju upplýsingar að brotthvarf á Íslandi er að minnka. Það hefur minnkað á síðustu fimm árum um 36%, þannig að við erum á réttri leið. En ég tek hins vegar heils hugar undir með hv. þingmanni að þetta verður að vera þannig að við séum í raun og veru með jafnvel fleiri nemendur í kerfinu okkar við lok kórónuveirufaraldursins en við vorum með í upphafi hans. Hvernig gerum við það? Jú, við vöktum þetta gríðarlega vel og við erum að gera það. Við erum að veita meira fé inn í námið og líka í sálfræðiþjónustu (Forseti hringir.) og ég get fullvissað hv. þingmann um að þetta mál stendur mér einna næst.