151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

staða sveitarfélaga vegna Covid-19.

[15:51]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að óska eftir umræðu um fjármál sveitarfélaga. Það er tímabært að við tökum þau mál til umræðu hér á Alþingi og skoðum hvað hefur verið gert og hver ætti að vera leiðin fram á við á tímum heimsfaraldursins.

Fyrst vil ég geta þess að samstarf ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaganna hefur verið mjög gott á þessu tímabili. Vissulega getur verið áherslumunur um aðgerðir. Strax í upphafi réðumst við sameiginlega í greiningu á fjármálum og líklegum sviðsmyndum fyrir afkomu ársins, þessa árs sem við stöndum á, 2020. Starfshópur sem skilaði af sér niðurstöðu í lok ágúst taldi að afkoman fyrir A-hluta sveitarsjóða myndi stefna í að verða 33 milljörðum lakari en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir, og ég legg áherslu á það, þar af væru 26 milljarðar vegna lægri tekna og aukinna útgjalda og rúmlega 6 milljarðar vegna aukinna fjárfestinga.

Það kom líka í ljós að staða sveitarfélaganna er afar misjöfn. Mörg þeirra hafa góðar forsendur til að vinna sig í gegnum vandann, eins og við öll þurfum að gera, meðan önnur eiga í meiri erfiðleikum, m.a. vegna skuldastöðu, íbúaþróunar eða annarra þátta. Ég hef óskað eftir því að starfshópurinn verði kallaður saman aftur að nýju til að ræða stöðuna eins og hún blasir við núna tveimur mánuðum síðar, eftir að hann lauk vinnu.

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær, þrátt fyrir mikið tekjufall hjá ríkinu, að líklegt er að tveir mikilvægustu tekjustofnar sveitarfélaganna, bæði útsvarið og fasteignaskattar, hækki á milli ára. Samanburður á þróun staðgreiðslunnar fyrstu níu mánuði ársins, og ég get reyndar bætt tíunda mánuðinum við, miðað við sömu mánuði í fyrra, bendir til að útsvarið hækki um 2% og verði allt að 5 milljörðum hærra en í fyrra. Það segir mér að allar þær umfangsmiklu aðgerðir, og ég er sammála hv. þingmanni, sem ríkisstjórnin hefur gripið til séu að skila miklum ávinningi fyrir sveitarfélögin. Ef ríkið hefði ekki farið í úrræði á borð við hlutabótaleiðina eða tímabundna lengingu tekjutengdra atvinnuleysisbóta, rekstrarstyrki til fyrirtækja, lokunarstyrki, auknar fjárfestingar o.s.frv., væri staðan án efa mun lakari hjá sveitarfélögum. Vissulega stefnir í mun minni hækkun útsvars en væntingar stóðu til í upphafi árs, hér vísa ég til fjárhagsáætlana, en hún er engu að síður vel ásættanleg miðað við ástandið. Þá hafa sum sveitarfélög, einkum á höfuðborgarsvæðinu, tækifæri til að nýta skattstofninn betur. Til að mynda gæti Garðabær verið með um 700 milljónum hærri tekjur á ári ef hann nýtti útsvarsstofninn að fullu eins og mörg önnur sveitarfélög þurfa að gera. Tekjur af fasteignaskatti aukast einnig um ein 5% á milli ára og það á síðan eftir að koma í ljós hvernig þær tekjur skila sér þegar fram í sækir.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga lækkar hins vegar og munar þar mest um lækkun á lögbundnum framlögum frá ríkinu vegna minni tekna ríkissjóðs, þar hefur verið miklu meira tekjufall. Það stefnir í að framlög hans lækki um 5% á milli ára eða um 3,6 milljarða frá því sem við væntum í upphafi árs. Það bitnar aðallega á þeim sveitarfélögum sem reiða sig hlutfallslega mest á sjóðinn, eðlilega, þ.e. sveitarfélögin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.

Þannig að horfurnar eru vissulega ekki góðar og við hefðum viljað sjá betri afkomutölur. Þetta er íþyngjandi staða fyrir sveitarfélögin, engin spurning. Engu að síður er ekki hægt að tala um hrun í tekjum þeirra. Ákveðinn varnarsigur er unninn en við þurfum að búa okkur undir frekari áföll. Ríkisstjórnin mun standa við bakið á sveitarfélögum eins og frekast er unnt svo að starfsemi þeirra raskist ekki um of á komandi mánuðum og misserum. Þetta sögðum við í yfirlýsingu við undirritun samkomulags um opinber fjármál og við munum standa við það. Beinn stuðningur við sveitarfélög samkvæmt yfirlýsingunni nemur um 3,3 milljörðum, talandi um 3,6 milljarða sem tekjur jöfnunarsjóðs minnka um. En til viðbótar er heimilt að nýta 1,5 milljarða úr fasteignasjóði jöfnunarsjóðs til almennra framlaga sjóðsins bæði í ár og á næsta ári. Ríkisstjórnin lítur á þennan stuðnings sem mikilvægt skref í þeirri vegferð að styðja við bakið á sveitarfélögunum en örugglega ekki það eina.

Eitt er þó víst að á þessu stigi erum við ekki að fara í almennar aðgerðir sem dreifa peningum úr ríkissjóði til sveitarfélaga án tillits til getu þeirra til að standa sjálf undir sínum lögbundnu skyldum. Það væri óábyrgt eins og staðan er núna hjá ríkissjóði og óábyrgt gagnvart öllum íbúum landsins.

Forgangsverkefni hins opinbera um þessar mundir eru að koma atvinnulífinu til aðstoðar, tryggja velferð heimila og heilsu þjóðarinnar og koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi og fjöldauppsagnir. Við þurfum að tryggja atvinnu og aftur atvinnu. Ég hef sagt það hér áður og mun segja það aftur. Þar þurfa ríki og sveitarfélög að standa saman og beina kröftum sínum í þá átt. Við höfum nokkrar leiðir til þess sem ég mun kannski koma að og nefna í lok umræðunnar.