staða sveitarfélaga vegna Covid-19.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra talaði tvisvar í ræðu sinni um hvað væri óábyrgt. Ég ætla að gagnálykta. Það er beinlínis óábyrgt þetta sinnuleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart sveitarfélögunum í þessu ástandi. Það mun beinlínis grafa undan efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar að koma ekki með kröftugri hætti til aðstoðar og einhver myndi nú kalla það að pissa í skóinn sinn en í þessu tilfelli er verið að pissa í skó allra landsmanna. Það er beinlínis gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun að sveitarstjórnirnar dragi úr fjárfestingu.
Sögulega hafa sveitarfélögin staðið undir 50% af allri opinberri fjárfestingu í landinu. Nú hafa þau um tvennt að velja, annars vegar að skera niður þjónustu sem að miklu leyti er lögbundin eða þá að draga úr framkvæmdum. Sveitarfélög reka sig, ólíkt ríkisvaldinu, að mörgu leyti eins og fyrirtæki þar sem er stór munur gerður á framkvæmdum og rekstri. Þau þurfa að reka sig á núlli og þau munu ekki geta það. Þau reka mikið af okkar dýrmætustu nærþjónustu og það er ekki í boði að skera hana niður. Þess vegna munu þau draga úr fjárfestingum. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala annaðhvort ekkert um þetta mál eða tala í kross. Á meðan hæstv. sveitarstjórnarráðherra vill ráðast í breytingar á skattstofninum, sem mun taka mörg ár, spyr fjármálaráðherra í umræðu hér í síðustu viku hvort ekki sé best að skoða það hvort sveitarfélögin séu orðin of sjálfstæð. Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur lagt fram útfærðar tillögur til aðgerða í þágu sveitarfélaga. Við höfum kynnt það bæði með ábyrgu leiðinni og með þingsályktun sem við lögðum fram í síðustu viku og verður mælt fyrir á morgun. Ég mælist til þess að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) taki þátt í þeirri umræðu.