151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

staða sveitarfélaga vegna Covid-19.

[16:23]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég veit ekki betur en að bæjarstjórar þeirra sveitarfélaga sem eru í Kraganum, Suðvesturkjördæmi, sem við ræddum við á mánudaginn á fjarfundi vegna kjördæmaviku, hafi sagt að þær aðgerðir sem áætlaðar eru af þessari ríkisstjórn séu ekki nægar. Ég skildi það sem svo að þær væru ekki einu sinni nægar til þess að hægt væri að veita lögbundna þjónustu. Spurningin er því: Hvað ætlar ríkisstjórnin, ráðherra, að gera meira? Gott væri að fá það mjög skýrt frá hæstv. ráðherra. Er hann byrjaður að skoða það? Hvað ætlar hann að gera meira? Er ríkisstjórnin byrjuð að ræða hvað eigi að gera meira? Á borðinu eru tillögur frá fyrirspyrjanda. Það væri hægt að gera meira, t.d. gæti ríkið tekið lán. Það færi kannski ekki bara að dreifa peningunum en jú, það er nú talað um styrki, kallað eftir styrkjum. Eitt af þeim atriðum sem er nefnt af fyrirspyrjanda er að lána sveitarfélögunum það fé á þessum betri kjörum. Það myndi jafnvel að vísu, ef ég skil það rétt, hafa áratuga afleiðingar eða vel rúmlega það á fjárhagsstöðu þessara sveitarfélaga.

En það sem vantar í þetta svar er hvað ríkisstjórn hæstv. ráðherra ætlar að gera meira og hvort hún er byrjuð að skoða það. Það virðist ekki mögulegt að sinna lögbundinni þjónustu. Hver er ábyrgð ráðherra og þessarar ríkisstjórnar þegar svo er? Lagaumgjörðin um tekjuöflun sveitarfélaganna er sett á Alþingi og þá að frumkvæði fjármálaráðherra þegar kemur að útgjaldamálum og svo skattamálum eða tekjuöflunarmöguleikum sveitarfélaga til að standa undir skyldum sínum. Þannig að spurningin er: Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera meira? Það sem er áætlað er ekki nóg.