staða sveitarfélaga vegna Covid-19.
Forseti. Ég er ánægður með þessa umræðu því að mér hefur þótt umræðan um þessi mál hafa verið nokkuð ruglingsleg. Þar sem ég er einfaldur maður þá reyni ég að taka viðfangsefni og smætta þau niður í eitthvað sem ég skil. Fyrir mér er staðan þríþætt varðandi stuðning eða lán eða hvað við köllum það, hvernig við komum til móts við sveitarfélögin. Í fyrsta lagi erum við að tala um langtímatekjustofna sveitarfélaga, mörk ríkis og sveitarfélaga og hvernig við ætlum að hafa þau. Það er umræða sem alltaf á sér stað og jú, staðan núna hefur áhrif á það. En það er ekki akkúrat umræðan sem við erum í núna þótt hún hafi stundum litast af því. Í öðru lagi erum við að tala um stuðning, styrk frá ríki til sveitarfélaga, að landsmenn allir, því að ríkið er ekkert annað en það, þar með taldir íbúar sveitarfélaganna, styðji sveitarfélögin með styrk frá ríkinu. Og svo í þriðja lagi erum við að tala um einhvers konar lán, eins og hér hefur verið talað um.
Sveitarfélögin standa mjög misjafnlega. Sveitarfélögin nýta sér á misjafnan hátt möguleika sína til tekjuöflunar. Sveitarfélag sem nýtir möguleika sína algerlega í topp er á öðrum stað en sveitarfélag sem gerir það ekki, svo dæmi sé tekið. Tekjufall sveitarfélaga er mismunandi. Staðan er mjög mismunandi. Þess vegna finnst mér mjög eðlilegt að sest sé yfir öll þessi mál og þau skoðuð út frá þeirri þríliðu sem ég nefndi hér í upphafi, en ekki öllu grautað saman og sagt: Sveitarfélög eru svona, ríkið þarf að gera eitthvað. Þannig á umræðan ekki að vera í mínum huga. Ég er algerlega sannfærður um að áður en landið er risið að fullu á ný munum við vera búin að setjast betur yfir þetta og komast að einhverri niðurstöðu þannig að sveitarfélögin standi betur en núna.