151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

staða sveitarfélaga vegna Covid-19.

[16:27]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér málefni sveitarfélaganna og því miður held ég að í þeirri umræðu þurfum við líka að taka málefni fatlaðs fólks alvarlega til athugunar. Ég held að það hafi verið árið 2011 sem þjónusta við fatlað fólk var færð yfir til sveitarfélaganna og síðan þá hefur verið talað um að fjármunir séu ekki nægir. Því miður virðast málefni fatlaðs fólks alltaf vera bitbein á góðæristímum og ég óttast mjög að þar verði fyrst skorið niður núna þegar fer að sverfa að. Ég sé þau teikn nú þegar á þeirri umræðu sem hefur verið í sambandi við NPA-samninga o.fl.

Í þessu samhengi verðum við líka að passa að sveitarfélögin og ríkið fari ekki í einhverjar skotgrafir og að á milli verði þeir sem síst skyldu vegna þess að við megum búast við því að sveitarfélögin standi frammi fyrir mikilli þörf fyrir fjárhagsaðstoð í því árferði sem nú er. Þar þarf líka að bregðast við vegna þess að við vitum að ástandið er slæmt þarna úti. Stór hópur fólks á varla fyrir mat, hvað þá öðru, verðlag rýkur upp úr öllu valdi og ástandið versnar og versnar. Börn og unglingar eru í mjög viðkvæmri stöðu vegna skólamála og það kom fram hjá sveitarfélögunum að ákveðin hópamyndun er hjá unglingum út af ákveðnum skólamálum og vegna þess hvernig ástandið er þar. Stór hópur unglinga kemst ekki í skóla á venjulegan hátt og þetta eru (Forseti hringir.) málefni sem við verðum að passa að koma í lag vegna þess að þetta er framtíðarkynslóðin okkar og við eigum að sjá til þess að málefni hennar hafi forgang.