151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

staða sveitarfélaga vegna Covid-19.

[16:30]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu hér. Það er ljóst af henni að mikið verk er óunnið og ekki síður ljóst að nálgun stjórnvalda og viðbrögð við fjárhagsvanda sveitarfélaga þarfnast ákveðinnar yfirlegu og betrumbóta. Mikilvægi fjárfestingargetu sveitarfélaganna er óumdeilt, ekki síst vegna samspils við viðspyrnuáætlanir ríkisstjórnarinnar. Ég læt þeirri umræðu eiginlega lokið af minni hálfu, það hefur komið skýrt fram, og ég veit og ég trúi því að þar verði brugðist við.

Mig langar til að nefna það sem hv. formaður fjárlaganefndar talaði um sem veikleika í tekjumyndunarmódeli sveitarfélaga. Ég er sammála. En það er líka veikleiki í stöðunni núna að ganga út frá því að útsvarstekjur sveitarfélaga muni halda sér út þetta Covid-tímabil og muni dekka hærri útgjaldakröfur. Útsvarstekjur eru hærri vegna tekjutengdra atvinnuleysisbóta og lífeyrisgreiðslna sem greiddar eru fyrir fram, eins og farið hefur verið yfir, en þetta eru tímabundnar aðgerðir. Það er líka þannig að útgjöld sveitarfélaga, sem eru að stórum hluta launakostnaður, munu aukast á næstunni vegna launahækkana. Það þarf að skoða þetta. Það er alveg ljóst. Við stöndum frammi fyrir áskorun til lengri tíma og til skemmri tíma og ef við klárum ekki núna áskorunina til skemmri tíma, ef við blöndum henni saman við, þá búum við til raunveruleg vandamál til lengri tíma. Það er staðan.

Á meðan ég get tekið heils hugar undir mikilvægi þess að nýta fjármagnið vel og skynsamlega og byggja upp atvinnulífið þá hefði ég líka viljað skynja meiri áherslu frá ráðherra á að grunnþjónusta sveitarfélaga við íbúa þessa lands væri í vari. Hluti þessarar þjónustu leggst misþungt á sveitarfélögin. Annars vegar vegna þess að henni var misskipt fyrir og hins vegar vegna þess að félagslegar afleiðingar Covid leggjast misþungt á íbúa mismunandi sveitarfélaga. Þarna á áherslan að vera. Grunnskólarnir okkar munu ekki koma samir undan þessum Covid-faraldri, börnin okkar, unglingarnir okkar, nemendur þessara sömu skóla, munu ekki koma samir undan. Þar á þessi þjónusta að vera. Þetta er lögbundin þjónusta sveitarfélaga. Okkur hér inni ber skylda til þess að tryggja (Forseti hringir.) að hún muni ekki bara hanga heldur að hún verði til fyrirmyndar. Það er hin raunverulega góða meðferð fjármuna í Covid-faraldri.