staða sveitarfélaga vegna Covid-19.
Virðulegur forseti. Ég þakka ágæta umræðu þó að maður geti ekki verið sammála öllum þeim fullyrðingum sem hér koma. Til að mynda er augljóst að við erum að greina þörfina og beina stuðningnum þangað sem ætlað er. Ég er hér með skýrslu frá OECD, yfirlit yfir það, og það er hægt að haka við nánast öll atriðin þar, við erum í raun að vinna samkvæmt þeim áherslumálum sem þar eru. Í þeim aðgerðum sem við höfum hingað til farið út í gæti umfangið sem sveitarfélögin hafa fengið sennilega verið á bilinu 15–20 milljarðar, ekki undir 15 milljörðum. Þegar menn tala um að hér sé lítið gert þá er það einfaldlega ekki rétt.
Hvað varðar skuldir sveitarfélaga er meiri hluti sveitarfélaga með viðunandi stöðu. Skuldahlutfall á landsvísu nam 105% á síðasta ári. Hámarkið er 150%, eins og menn þekkja. Ef sveitarfélögin samanlagt myndu auka skuldir sínar um 15 milljarða myndi þetta hlutfall fara úr 105% í 108%, það myndi aukast um 3 prósentustig. Skuldahlutfall A-hluta Reykjavíkurborgar er 91% og ef sveitarfélagið tæki 10 milljarða lán færi það í 100%, sem er engu að síður talsvert undir meðaltali. Það er því ýmislegt hægt að gera.
Lánasjóður íslenskra sveitarfélaga, eftir breytingar sem við gerðum í vor, er á pari við ríkið, getur veitt lán af umtalsverðum styrk og stærð á mjög lágum vöxtum í umhverfi sem er vaxtalægsta umhverfi í sögulegu samhengi. Það er síðan sveitarfélaganna sjálfra að velja sínar leiðir. Þau eru jú sjálfstæð og þau eru ólík sveitarfélögum annars staðar á Norðurlöndunum. Þau vilja vera sjálfstæð. Jöfnunarsjóðurinn eins og hann er í dag eykur sveiflurnar, það er efni í aðra umræðu sem ég get ekki tekið núna en væri mjög áhugavert að taka. Staðan er vissulega misjöfn (Forseti hringir.) en þessar 500 milljónir sem við erum með í yfirlýsingunni, til að aðstoða sveitarfélög sem verst standa að vígi, munu nýtast. (Forseti hringir.) 670 milljónir í málefni fatlaðra munu nýtast, 720 milljónir í fjárhagsaðstoð handa sveitarfélögum sem nú er að aukast munu nýtast mjög vel. (Forseti hringir.) Það eru í raun og veru einungis 600 milljónir sem jöfnunarsjóðurinn verður af eftir þær aðgerðir sem gripið verður til á þessu ári.
(Forseti (BN): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að þeir þurfa líka að fylgja tímamörkum.)