þingsköp Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég bið forseta afsökunar á því að láta hann standa svo lengi en nú eru þingmenn úti um allt hús að kröfu sóttvarnayfirvalda, þess vegna þurfti sá sem hér stendur að eiga nokkra leið hingað út af þessu máli.
Hér liggur fyrir nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, um fjarfundi nefnda. Í stuttu máli sagt er með frumvarpinu verið að lögbinda þann hátt sem hafður hefur verið á, í því ástandi sem við upplifum, að nefndarfundi sé hægt að hafa sem netfundi eða fjarfundi þegar sérstaklega stendur á, eins og hér segir. Það er talið upp hvers vegna, með leyfi forseta, „svo sem af heilsufars- eða sóttvarnaástæðum, vegna samgöngutruflana eða veikinda aðstandenda eða þegar fundir eru haldnir utan starfsáætlunar þingsins“.
Þegar við tölum um samgöngutruflanir eigum við við það, herra forseti, að eins og alkunna er þá búa allmargir þingmenn utan höfuðborgarsvæðisins og það kemur fyrir á vetrum að það sé erfitt fyrir þá að koma hér, t.d. á mánudagsmorgnum, af því að það er ekki alltaf á vísan að róa með flug. Þetta er sett inn til að það sé upp talið og betur niðurnjörvað í hvaða tilfellum það er sem við getum haft fjarfundi.
Eins og við vitum öll hér inni hefur þurft að gera breytingar á ýmsum lögum vegna þess ástands sem hér ríkir og mun ríkja hér væntanlega um allnokkra hríð, því miður. Og eins og við vitum, herra forseti, hefur verið talað um að það vanti upp á það að ákvæði sóttvarnalaga séu nógu öflug eða nógu traust til þess að menn geti staðið föstum fótum þegar verið er að gera ráðstafanir sem eru settar fram um þessar mundir í reglugerðum og jafnvel tilskipunum eða tilmælum. Auðvitað er mjög brýnt að úr því verði ráðið líka.
Alþingi sjálft brást náttúrlega við eins og það hefur gert í þessum aðstæðum, þ.e. að reyna að tryggja það með öllum ráðum að það verði ekki röskun á starfi þingsins. Við grípum til þeirra ráðstafana að hér verði ekkert rof í störfum þingsins og jafnvel þó að svo illa færi að hér kæmi upp smit hefðu menn vaðið fyrir neðan sig og þess vegna erum við hér dreifð úti um öll hús eins og alkunna er.
Það segir í nefndaráliti að nefndin hafi fjallað um málið og fengið a á sinn fund Laufeyju Helgu Guðmundsdóttur, Stíg Stefánsson og Þórhall Vilhjálmsson frá skrifstofu Alþingis. Það segir hér:
„Ákvæði þingskapa gera ráð fyrir að alþingismönnum sé skylt að mæta á nefndarfundi, sbr. 1. mgr. 17. gr., og hefur ákvæðið verið skilið svo að nefndarmaður teljist mættur á nefndarfund ef hann er á staðnum. Í kórónuveirufaraldrinum sem nú gengur yfir hafa tvisvar sinnum verið veitt tímabundin afbrigði frá ákvæðum um mætingarskyldu nefndarmanna og um ályktunarbærni nefndarfunda. Var það gert til að skapa alþingismönnum skilyrði til að sinna nefndastörfum þrátt fyrir samkomubann og fjarlægðartakmarkanir. Sú reynsla sem fengist hefur af störfum fastanefnda Alþingis hefur orðið tilefni til þess að festa í sessi í þingsköpum heimild fyrir alþingismenn til að taka þátt í nefndastörfum með fjarfundarbúnaði við tilteknar aðstæður. Nefndarmaður sem nýtir sér heimildina mun því geta tekið þátt í ályktunarbærum nefndarfundi og greitt atkvæði um mál, haft tillögurétt og komið að öðrum ákvörðunum þingnefndar.
Frumvarpið felur ekki í sér að fallið verði frá þeirri meginreglu að nefndarmenn skuli vera staddir á fundarstað. Þeim verði þó heimilt við tilteknar aðstæður að taka þátt í fundi með fjarfundarbúnaði. Hér getur verið um að ræða heilsufarsástæður sem varða þingmanninn sjálfan, sóttvarnaástæður, veikindi barna eða annarra aðstandenda, röskun á samgöngum eða óreglulega fundi nefnda.“
Það er sjálfsagt að taka fram að það urðu nokkrar umræður um þetta atriði sem varðar veikindi alþingismanna og aðstandenda. Það var t.d. fundið að því að það skyldi vera hér inni að ef þingmaður er staddur heima með veikt barn sé hann á sama augnabliki eða samdægurs að sinna nefndarfundi með fjarfundabúnaði á vegum Alþingis þegar hann á að vera annast um sitt barn. Auðvitað treystir þingið því að þingmenn sjálfir leggi á það mat hvenær þeir eru færir um að mæta á svona fundi setta eins og aðra fundi. Að sjálfsögðu er til reiðu fyrir alþingismenn, eins og menn vita, að kalla inn varamann ef aðstæður eru þannig, þar á meðal veikindi. Sjálfstæði starfsins er með þeim hætti að þingmaðurinn sjálfur verður að taka ákvörðun í slíku, enda segir í nefndarálitinu að ekki sé verið að líta á þetta sem hvatningu til þess að þingmaður taki þátt í fundum ef veikindi eru annaðhvort hjá honum sjálfum eða fjölskyldu, slík ákvörðun sé á valdi og ábyrgð hvers þingmanns. Þetta er bara eins og önnur ákvæði um starf þingmanna. Starf þingmanns er náttúrlega öðruvísi en öll önnur störf að því leyti til að þingmaðurinn verður sjálfur að taka ábyrgð á sjálfum sér við öll tilefni og af öllum tilefnum
Hér segir einnig, með leyfi forseta:
„Að mati meiri hlutans felur frumvarpið í sér mikilvægt skref í átt að bættum starfsskilyrðum þingmanna. Auk þess hafa gestir í öllum tilfellum val á milli fjar- og staðfunda. Meiri hlutinn leggur því mikla áherslu á að Alþingi tryggi að til sé góður tæknibúnaður til fjarfunda og að haldið verði áfram að efla getu þingsins í þessum efnum með því að uppfæra hugbúnað og tæknikost. Þá þarf að tryggja nauðsynlega tækniþekkingu á búnaðinum og viðhalda þekkingu þingmanna á því hvernig best er að haga fjarfundum. Til þess að heimildin nýtist jafnt þingmönnum og gestum er mikilvægt að til sé góð aðstaða til fjarfunda í öllum fundarherbergjum þingsins.“
Þetta er það sem nefndarálitið hefur efnislega að geyma, herra forseti. En ég segi aftur: Auðvitað hafa margar þær ráðstafanir sem þingið hefur gripið til í ýmsum málum verið gerðar í flýti vegna þess að það þurfti að gera það í flýti út af því hvernig kringumstæður voru. En eins og hæstv. forseti veit allra manna best, lögspekingur hokinn af reynslu, þarf þingið að hafa fast land undir fótum eins og aðrir. Við þurfum öll og stjórnvöld þurfa að hafa fast land undir fótum þegar tekið er til aðgerða sem eru nauðsynlegar út af ástandinu sem hefur skapast vegna kórónuveirunnar. Við gerum ráð fyrir því, eins og áður, að þegar lög eru sett á Alþingi þá gildi þau inn í fyrirsjáanlega framtíð. Það þarf því að sjálfsögðu að láta reynsluna segja okkur hvernig þessi breyting reynist. Ef við verðum vör við það á einhverjum tímapunkti að þessi atriði, eins og þau eru sett upp, verði til trafala, hvort sem það eru þau ákvæði sem ég rakti hér áður varðandi veikindi o.s.frv., eða önnur, þurfum við einfaldlega að taka þau upp. Ég hef enga trú á því að það gerist en auðvitað þurfum við að vera reiðubúin því að þurfa að breyta því sem hér er gert ef ástæður reynast til.
Að loknum þessum lestri mælist ég til þess að þetta mál eigi greiða leið í gegnum þingið. Það er mikilsvert að við stöndum öll traustum grunni lagalega, hvað þá löggjafinn sjálfur, og við eigum náttúrlega ganga fram í fyrirmynd þess að hér sé lagatilbúnaður þannig að engir hnökrar verði eða mistök gerð að þessu leyti. Ég legg því til, eins og ég segi aftur, að þetta mál eigi greiða leið í gegnum þingið og við samþykkjum það hið fyrsta.