151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

þingsköp Alþingis.

8. mál
[16:47]
Horfa

Frsm. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Andrés Ingi Jónsson) (U):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í þessu máli. Mér finnst rétt að byrja á því að nefna að við í minni hlutanum erum í öllum grundvallaratriðum sammála meiri hlutanum um mikilvægi þess að koma þeim tímabundnu afmörkuðu heimildum sem hafa verið til fjarfunda á undanförnum mánuðum í fastari farveg með því að lögbinda þær. Það endurspeglar líka þá þróun sem er eðlilegt að verði þegar fordæmalaust ástand fer að verða viðvarandi að einhverju leyti. Í rauninni er mjög tímabært að búa til einhvern ramma utan um fjarfundi fastanefnda Alþingis, ekki bara til að við, nefndarfólkið sjálft, getum sótt fundi með slíkum hætti heldur líka til þess að greiðari leið sé fyrir gesti okkar að taka þátt í fundum með fjarfundarbúnaði. Það skiptir ekki litlu máli þegar fólk á um langan veg að fara, oft vegna stuttra funda þó að málin séu oft brýn.

Það er rétt að taka jafnframt fram að þessu frumvarpi er ekki ætlað að fela í sér neina almenna heimild handa þingmönnum til að taka þátt í nefndarfundum með fjarfundarbúnaði. Það sem við í minni hlutanum erum að leggja til er í rauninni að skala málið aðeins niður og færa nær þeirri framkvæmd sem hefur verið nú í kórónuveirufaraldrinum.

Þær ástæður sem eru nefndar í frumvarpinu sem mynda rétt þingmanna til að sækja fund með fjarfundarbúnaði eru í raun þrenns konar. Í fyrsta lagi eru sóttvarnaástæðurnar megintilefnið og ég held að við getum öll verið sammála um að það sé mikilvægt, sérstaklega vegna þess að af sóttvarnaástæðum getur einstaklingur sem er að öðru leyti algerlega heilbrigður þurft að halda sig frá öðru fólki til að verja það. Þess vegna er mjög eðlilegt að við komum til móts við fólk sem þarf að halda sig í vari til að verja okkur hin.

Síðan í öðru lagi er í þessu frumvarpi bætt við nýjum ástæðum sem mætti fella undir einhvers konar óviðráðanleg eða ófyrirsjáanleg ytri atvik, t.d. vegna samgöngutruflana eða þegar fundir eru haldnir utan starfsáætlunar, sem gerist oft fyrirvaralítið. Þetta eru ástæður sem hitta þingmenn ólíkt fyrir eftir því hvar þeir eru staddir á landinu. Með því að festa þessa heimild í lög er hægt að jafna aðstöðu þingmanna til að sinna starfi sínu.

Síðan er það þriðja tegund ástæðna sem eru þau tilvik sem við í minni hlutanum leggjumst gegn að fella undir undanþáguheimild frumvarpsins. Þar er um að ræða heilsufarsástæður sem varða þingmann sjálfan og veikindi barna eða annarra aðstandenda. Ef veikindi þingmanns eru þess eðlis að hann er rólfær en vill forðast nærveru við samstarfsfólk sitt þá mætti leiða líkur að því að það félli einfaldlega undir sóttvarnaákvæði frumvarpsins. Hins vegar, ef veikindin eru þess eðlis að viðkomandi er bara veikur eða er með veikt barn í fanginu allan daginn, er eðlilegast að umgangast slík veikindi líkt og annað vinnandi fólk gerir og vinna ekki þann dag. Í því sambandi er líka gott að minna á að allir nefndarmenn geta kallað inn varamenn í þeim nefndum sem þeir sitja í og veikindi eins þingmanns eiga þess vegna ekki að valda neinum röskunum á starfi fastanefndar þingsins. Við erum ekki það ómissandi að við þurfum að mæta á alla fundi.

En þetta er líka hluti af stærra samhengi. Samhliða þeirri jákvæðu byltingu sem er að verða í notkun fjarfunda í samfélaginu öllu þurfum við að hafa vakandi auga með þeim neikvæðu afleiðingum sem geta stafað af þessu. Ein af þeim er hvernig mörkum á milli vinnu og einkalífs hættir til að mást út þegar vinnan er komin inn á heimilið. Ef við teiknum upp einhverja dystópíska framtíðarsýn þá gæti sú þróun gengið enn lengra og fólk sem ynni heima væri jafnvel hvatt til þess að sinna vinnu sinni þrátt fyrir veikindi sín eða barna sinna. Það væri hreinlega bakslag fyrir veikindarétt sem fólk á almennum og opinberum vinnumarkaði hefur barist fyrir. Nú er Alþingi ekki hefðbundinn vinnustaður og rök um réttindi á vinnumarkaði eiga ekki beint við störf okkar þingmanna, en það skiptir máli að Alþingi gangi fram með góðu fordæmi frekar en að opna á einhverja umræðu um að það sé eðlilegt að afsala sér veikindarétti.

Þetta eru meginatriðin sem felast í nefndaráliti okkar í minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem samanstendur af þeim sem hér stendur og hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni. Við leggjum til, virðulegur forseti, að orðin „heilsufars- eða“ og „eða veikinda aðstandenda“ falli einfaldlega brott úr þessu frumvarpi en að það verði samþykkt að öðru leyti.