151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

þingsköp Alþingis.

8. mál
[16:54]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Veikindi fólks geta verið alls konar. Þau geta verið einhverjar umgangspestir, nú eða kórónuveirusýking eða hvað það heitir sem við horfum á í dag en geta líka verið öðruvísi og alls konar. Þau geta verið krónísk, þingmenn geta verið með hrörnunarsjúkdóm eða krabbamein eða MS eða hvað það er. Þingmenn geta fótbrotnað eða farið í bakinu, ýmislegt getur komið fyrir þingmenn.

Þingmennskan er ólík mörgum öðrum störfum en mörg störf eru þannig að ef tilfallandi vanlíðan hamlar því að fólk mæti á vinnustað er kannski möguleiki á, ef fólk vill það, að það vinni heima. Sjálfur hef ég nýtt mér það í annarri vinnu en hér, en þingmennskan býður ekki upp á það, eða hvað?

Er hv. þingmaður á móti því að þingmaður með krabbamein, fótbrotinn þingmaður, þingmaður með MS, sem treystir sér ekki alveg til að mæta á nefndasviðið eða fara í allt það umstang sem því fylgir en vill gjarnan fá að taka þátt í starfinu, fái að gera það? Treystir hv. þingmaður ekki öðrum hv. þingmönnum að standa vörð um eigin veikindarétt, okkur sem förum hér með löggjafarvaldið, fjárveitingavaldið, ríkisreikninginn? Treystir hv. þingmaður ekki hverjum og einum þingmanni til að standa vörð um eigin veikindarétt?