þingsköp Alþingis.
Virðulegur forseti. Eins og ég sagði held ég í ræðu minni þá snýst þetta ekki um veikindarétt þingmanna heldur það að við sendum ekki þau skilaboð út í samfélagið að veikindaréttur sé umsemjanlegur. Það að opna þessa heimild er bara miklu víðtækara skref en að festa í sessi þá heimild sem hefur verið í gildi frá upphafi faraldursins. Ég held að það sé fullrar athugunar virði að vera með almenna heimild til fjarfunda án skilyrðingar. En það er bara ekki það sem við erum að ræða hér. Þess vegna ættum við að taka hugmyndina um fjarfundi þegar fólk er veikt til hliðar að sinni.
Hér er spurt hvort þessi þingmaður treysti fólki ekki til að meta eigið ástand upp á það hvort það geti sinnt fjarfundum eða ekki. Ég vil bara spyrja á móti: Treystir hv. þingmaður þingmönnum ekki til að meta það bara án skilyrðingar hvort þeir mæti á fjarfund? Hér eru talin upp fimm atriði sem veita heimildir til að nýta sér fjarfundarbúnað í nefndastarfi þingsins. Hvaða vantraust er í því að treysta fólki til að meta það bara sjálft hvort það þurfi að mæta á fjarfund eða hvort það geti mætt á staðfund? Ég held að við ættum frekar að taka umræðu um það traust.