þingsköp Alþingis.
Forseti. Yfirleitt er það til marks um að maður sé kominn í rökþrot og geti ekki haldið áfram eftir þeim brautum sem samtölin eru á þegar maður ákveður að svara ekki spurningum heldur velja sér sjálfur sínar spurningar og spyrja á móti. Það er ódýra leiðin fyrir stjórnmálamenn. Það eru gamaldags stjórnmál og mér leiðast þau. Já, við getum eytt þessum vandræðalegu umræðum hér, ef hv. þingmaður vill það, og farið að ræða þetta á einhverjum öðrum vettvangi, í stærra samhengi og jú, hafa eitthvert orðagjálfur þar um. Það er voða fínt. En ég er að spyrja hv. þingmann, forseti, út í akkúrat þetta. Ef hann vill ekki svara því þá er það að sjálfsögðu hans réttur. Ég virði hans rétt eins og ég virði það ef hann, af einhverjum ástæðum, treystir sér ekki til að mæta. Líði honum ekki alveg 100% þennan daginn en vill gjarnan fá að taka þátt í afgreiðslu máls eða spyrja gesti eða hvað það er treysti ég hv. þingmanni til að ganga ekki of um of á eigin veikindarétt þannig af skaði hljótist af.
Ef hv. þingmaður er á því að það eigi að vera skilyrðislaus réttur, engin skilyrði fyrir fjarfundum, þá er veikindarétturinn væntanlega þar inni líka, er það ekki, herra forseti? Mér finnst hv. þingmaður kominn dálítið mikið í hring í því að reyna að skjóta sér undan því að svara einföldum spurningum.