þingsköp Alþingis.
Virðulegur forseti. Ég bjóst ekki við því að vera sakaður um rökþrot eða gamaldags stjórnmál í því sem ég hélt að væru nú bara eðlilegar umræður um þingmál. En svona getur dagsformið verið misgott á þingmönnum eins og öðru fólki. Einu sinni tók ég veikindaleyfi frá þingstörfum, var frá störfum í tvær vikur. Ég þurfti að skila inn vottorði frá lækni um að ég hefði verið veikur, hefði ekki getað sinnt vinnu af heilsufarsástæðum. Ég leit ekki á það sem vantraust. Ég skil ekki alveg af hverju við erum komin út í einhverja umræðu um það hvort ég treysti þingmönnum út af hinu eða þessu. Ef þingmenn eru veikir þá treysti ég þeim til að vera veikir heima hjá sér eins og eðlilegt er þegar fólk er veikt.