151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

þingsköp Alþingis.

8. mál
[17:01]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem hér til þess að ræða örstutt um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, fjarfundi nefnda. Ég styð málið og nefndarálit meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem gerð hefur verið grein fyrir hér, enda er löngu tímabært að skýra heimildir til fjarfunda þingnefnda. Að mínu áliti hefur það tekið allt of langan tíma að koma á skilvirkum fjarfundum í störfum þingsins, ekki síst með tilliti til hagsmuna þeirra gesta sem koma fyrir þingnefndir.

Það sem ég vil sérstaklega koma inn á hér er mikilvægi þess að tryggja og viðhalda góðum tæknibúnaði þannig að haldnir verði skilvirkir fjarfundir þó að við komumst út úr því ástandi sem við erum í núna þar sem fjarfundir eru meginregla.

Það hefur komið fram, við umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um málið, að gert er ráð fyrir því að gestir geti í öllum tilfellum valið á milli fjar- og staðbundinna funda, en ég tel að það gæti verið mjög gagnlegt fyrir gesti að til væri skýr rammi og leiðbeiningar um þátttökuna. Það myndi nýtast öllum og tryggja enn betri skilvirkni. Til þess að þetta geti gengið eftir til framtíðar álít ég líka að öll fundaherbergi þingsins á nefndasviði þurfi að vera útbúin fyrir fjarfundi þannig að þau væru búin sérhæfðum fjarfundabúnaði fyrir slíka fundi. Og auðvitað þarf svo að viðhalda forritum og tryggja bestu tækni á hverjum tíma.

Orð sem mig langar að kynna hér í ræðustól, ég er ekki viss um að það hafi nokkurn tímann verið nefnt hér, er orðið fjærverur. Fjærverur eru vélmenni sem t.d. eru notaðar við Háskólann á Akureyri sem tryggja þar nemendum í sveigjanlegu námi möguleika á að ferðast í raun um háskólabyggingu og vera sýnilegri og meira áberandi á fundum og í hópvinnu þó að þeir séu ekki á staðnum heldur tengdir í gegnum einhvers konar fjarbúnað, sem er þá í þessu tilviki fjærverur. Ég sé fyrir mér að þingið þyrfti að eignast svona fjærverur, vélmenni sem gæti nýst þar sem t.d. einn eða tveir nefndarmenn eru þátttakendur á fjarfundi en meiri hluti þátttakenda er á staðnum. Þar með yrðu þeir virkari þátttakendur í fundunum og sýnilegri og engin hætta á að það gleymist í raun að einhver sé á fjarfundi. Reynslan hefur sýnt það að þetta er ein leið til að gera fjarfundi mun skilvirkari en þeir voru lengi vel.

Auk þess að tryggja tæknibúnað og þekkingu á honum er líka mjög mikilvægt að á öllum tímum séu til leiðbeiningar og að þingmenn og aðrir sem stýra fundum séu þjálfaðir í því að stýra fjarfundum. Það er auðvitað töluvert öðruvísi en að stýra hefðbundnum fundi þar sem allir eru á staðnum.

Eins og ég sagði í upphafi þá fagna ég því að nú erum við komin með ramma utan um heimildir til fjarfunda, sem við þurfum svo að vera vakandi fyrir að þróa áfram.