þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Ég ætla nú bara að hafa þetta stutt, en það rifjaðist eitt upp fyrir mér þegar hv. þingmaður var hér í pontu. Ætli hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir sé ekki sú okkar sem býr einna lengst frá Austurvelli á yfirstandandi þingi og hafi þar af leiðandi mjög konkret reynslu af því hve mikill akkur er í því að geta sótt fundi í gegnum fjarfundabúnað. En það er eitt atriði sem ég held að sé ekki fjallað um í skjölum málsins sem mig langar aðeins að tæpa á. Það eru trúnaðargögn og afhending þeirra á fundinum. Við erum enn þá að streða við að geta gert það í gegnum tölvubúnað. Enn þá er krafa um viðveru til að geta tekið við gögnum sem eru bundin sérstökum trúnaði. Mig langaði bara aðeins að heyra frá þingmanninum, hversu brýnt henni þyki að náð verði utan um þetta til þess að hægt sé að færa alla fundi undir fjarfundi, líka þá þar sem þingmenn taka við gögnum sem bundin eru trúnaði.