151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

þingsköp Alþingis.

8. mál
[17:07]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni sérstaklega fyrir að koma inn á þetta mál því að ég hafði raunar hugsað mér að nefna þetta, en það fórst fyrir. Trúnaðarupplýsingar eru einmitt eitt af því sem við höfum ekki fundið leið til að miðla í gegnum fjarfundi, en það eru vissulega komin kerfi sem leyfa slíkt. Nú erum við farin að sjá í fjölbreyttu félagsstarfi að það fara fram bæði kosningar og atkvæðagreiðslur á fjarfundum í gegnum sérstök kerfi sem eru þá lokuð og mjög vel tryggð. Á sama hátt er hægt að finna leiðir til að miðla trúnaðarupplýsingum. Ég held að það sé eitt af því sem hljóti að vera á dagskrá til að tryggja bestu fjarfundatækni á hverjum tíma og þarf að vera það. Varðandi þessa möguleika þurfum við á öllum tímum að vera vakandi fyrir því að geta leyst öll mál með þessum hætti. Við vitum aldrei hvenær virkilega reynir á það og síðan skapar það auðvitað ótal möguleika í starfinu að nýta alltaf alla möguleika sem tæknin býður upp á.