þingsköp Alþingis.
Forseti. Þetta er gott frumvarp. Þetta er lítið skref en nauðsynlegt skref í rétta átt að því að tryggja getu þingmanna til að hafa eftirlit með því hvernig mál eru unnin hérna á þingi, sem gerist í nefndarstörfum að miklu leyti. Fyrir Covid var meginreglan bara sú að ef þingmaður komst ekki á nefndarfund í eigin persónu hafði hann engan rétt til eða getu til að fylgjast með þeirri umræðu sem þar fór fram. Þess vegna hafa Píratar í gegnum tíðina ítrekað kallað eftir því að nefndarfundir Alþingis séu að jafnaði opnir. Það er ómögulegt að maður missi kannski af einum fundi í máli þar sem koma hagsmunaaðilar til að tala við þingmenn um það hvernig skuli haga löggjöf í þessu landi. Almenningur fær ekkert að vita um það, þegar það er ekki gert skriflega, hvernig hagsmunaaðilar hafa áhrif á þingmenn um löggjöf landsins. Þetta er allt fyrir lokuðum dyrum að jafnaði. Ef maður er að reyna að sinna eftirliti, hinu lögbundna eftirliti, með þessu og gera það faglega og kemst ekki á einn fund, getur maður verið búinn að missa af nauðsynlegum upplýsingum til að taka upplýsta ákvörðun. Svo er verið að taka mál út úr nefnd eða taka ákvarðanir um framvindu málsins og þá getur maður ekki sinnt sínu hlutverki. Þess vegna ættu fundirnir að jafnaði og almennt, sér í lagi þegar hagsmunaaðilar koma og hafa áhrif á þingmenn um það hvernig löggjöf skuli háttað í þessu landi, að vera opnir almenningi, það á bara að sjónvarpa þeim. Það er víða gert um heiminn að þeim sé sjónvarpað og allir geta fylgst með umræðunni sem á sér stað. Ef þingmenn vilja loka fundi og ræða eitthvað sín á milli þá gætu þeir gert það en almennt ættu fundirnir að vera opnir.
Samkvæmt þessu frumvarpi eru nefndarfundir almennt lokaðir, ég tala nú ekki um ákvarðanatöku og ræður þingmanna á milli, en þrátt fyrir það geta þingmenn komið inn á fjarfundi við vissar kringumstæður. Þetta byrjaði í Covid, þá var nauðsyn til staðar til að gera það vegna sóttvarnaráðstafana. Það hefur verið gert þannig að beitt hefur verið ákveðnum greinum í þingsköpum, sem eru leikreglur þingsins, og sagt: Já, menn verða að mæta en við ætlum að gera undantekningu núna í einhvern tíma og menn mega mæta á fjarfundi og taka gildar ákvarðanir og koma með tillögur þó að þeir séu ekki á staðnum. Þeir eru virkir og mega taka fullan þátt í nefndarfundi í gegnum fjarfundabúnað. Nú er verið að lögfesta þetta og víkka örlítið meira út en bara vegna sóttvarnaástæðna.
Það sem mér sýnist að allir nefndarmenn og þeir sem hafa rætt um málið í 1. umr. séu sammála um er að það sé góð hugmynd, sem kemur fram í 1. gr. frumvarpsins, að nefndarmönnum sé þó heimilt að taka þátt í nefndarfundi með notkun fjarfundarbúnaðar þegar sérstaklega stendur á, og svo eru talin upp nokkur atriði. Það virðast allir vera sammála um sóttvarnaástæður, það er ein ástæða. Önnur ástæða er vegna samgöngutruflana. Það er mikilvægt atriði í ljósi þess að fólk sinnir kjördæmi sínu, er að fara heim til fjölskyldna sinna og getur lent í því að samgöngutruflanir komi í veg fyrir að einstaklingurinn geti mætt í eigin persónu á nefndarfundi og þar af leiðandi er að sjálfsögðu nauðsynlegt að það geti gert það með fjarfundabúnaði. Ein ástæðan er líka þegar fundir eru haldnir utan starfsáætlunar þingsins. Það getur verið mikilvægt að boða til fundar með skömmum fyrirvara, t.d. til að sinna eftirlitshlutverki þingsins sem er verulega vængstýft þegar þing kemur ekki saman, fyrirspurnir o.s.frv. eru bara horfnar. Þá eru það í rauninni bara nefndirnar sem geta á virkan hátt sinnt eftirlitshlutverki með framkvæmdarvaldinu, sem er eitt mikilvægasta hlutverk þingsins, þ.e. að tryggja að þeirri löggjöf sem hefur verið sett hér á þingi sé raunverulega framfylgt af framkvæmdarvaldinu. Þannig að það er mikilvægt, eins og hér segir, að þegar fundir eru haldnir utan starfsáætlunar þingsins sé hægt að boða fund og nefndarmenn gætu komið og sinnt sínu hlutverki þar. Mjög mikilvægt. Allir virðast vera sammála um þetta.
Það sem út af stendur, sem ég heyri hjá Andrési Inga Jónssyni og Guðmundi Andra Thorssyni sem eru á minnihlutaálitinu — ég er sem sagt á meirihlutaálitinu og ég styð öll þessi atriði — er þetta atriði varðandi heilsufarsástæður eða veikindi aðstandenda. Ég skil alveg sjónarmiðin sem koma fram í minnihlutaálitinu og hafa verið borin hér upp varðandi veikindarétt o.s.frv. Það hefði verið möguleiki að setja inn einhvers konar ákvæði til að reyna að passa upp á að ekki væri verið að brjóta á veikindarétti, ég sé ekki hvernig það myndi líta út nákvæmlega, en það eru bara svo margar kringumstæður þar sem heilsufar þingmanns er þannig að hann geti samt sinnt starfinu á fjarfundi, eins og t.d. fótbrot eða ef hann fer í bakinu. Þingmenn, meiri parturinn af þeim, eru líklega á þeim aldri að bakið getur alveg farið eða einhver stoðkerfisvandamál geta komið upp þannig að ég myndi alls ekki vilja vera í þeim kringumstæðum að slíkir hlutir myndu, út af því hvernig fyrirkomulagið er, valda því að maður gæti bara ekki tekið þátt. Þá fær maður ekki þær upplýsingar sem koma fram á fundinum en eru nauðsynlegar til að geta tekið vel upplýsta ákvörðun um málið.
Best væri náttúrlega, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á, að þetta væri bara almenn regla í öllum kringumstæðum, maður velur bara hvort maður sé á fjarfundi eða ekki. Að sjálfsögðu er hægt að gera það. En þeir sem fluttu þetta mál eru þeir sem sitja í forsætisnefnd og eru kannski, myndi ég halda, þegar maður fer yfir það, með íhaldssamara fólki hér á þingi, ég veit ekki. Það eru kannski bara þeir framsæknustu sem myndu vilja færa heimildina alfarið yfir til þingmanna, að þeir velji sjálfir hvort þeir mæti á fjarfundi á nefndarfundi, en það er vel gerlegt. Það er vel gerlegt og mjög vel hægt að sinna nefndarstarfi í gegnum fjarfundi.
Persónulega myndi ég vilja fara alla leið með þetta. En ég styð samt sem áður öll þau skref sem hér eru stigin um að auka heimildir nefndarmanna til að taka þátt í nefndarfundum með fullum réttindum á öllum þessum forsendum; á forsendum sóttvarna, samgöngutruflana, funda utan starfsáætlunar og vegna heilsufars þingmannsins eða veikinda aðstandenda. Veikindi geta verið mjög mismunandi og er vel hægt að sinna aðstandendum við mjög margar kringumstæður þótt maður sé með hljóðið í eyranu o.s.frv. Ég skil samt sem áður alveg þau sjónarmið sem komu fram um þetta, en ég myndi ekki vilja takmarka þau réttindi enda hafa þingmenn alltaf fullan rétt á því að segja: Ég mæti ekki. Þeir hafa alltaf fullan rétt á að sinna aðstandendum sem þeir þurfa að sinna vegna veikinda. Þetta er bara heimild. Ef kringumstæður eru þannig að þeir geta ekki mætt, en þeir gætu gert hvort tveggja, er þeim það í sjálfsvald sett og þeir eiga fullan rétt á því samkvæmt lögum um þingsköp og þeir þurfa ekkert að hringja inn og fá að vera á fjarfundi eða leggja inn bón um að fá að hlusta á fundinn sem kannski er ekki leyft. Þarna er tryggt að hægt sé að sinna starfinu betur. Þannig að ég styð málið eins og það var lagt fram af meiri hluta nefndarinnar.