þingsköp Alþingis.
Virðulegur forseti. Eins ömurleg og þessi helvítis veira er og við upplifum ömurlega tíma eru samt ákveðnir hlutir sem hægt er að taka út úr þessu ástandi sem við höfum lært og það hefur ýmislegt gott komið til. Eitt af því er þessi þróun sem hefur verið í fjarfundum. Ég sit í forsætisnefnd og flutti þar af leiðandi þetta frumvarp og styð það. Ég vildi geta þess hér, og ég gerði það jafnframt í forsætisnefnd á sínum tíma, að ég hefði alveg verið til í að setja bara punktinn við það að nefndarmönnum sé heimilt að taka þátt í nefndarfundum með fjarfundabúnaði, (Gripið fram í.) að það þyrfti ekki að fara í frekari upptalningu. Ég vissi ekki alveg hvert hv. þingmaður sem var hér á undan mér, Jón Þór Ólafsson, var að fara í upphafi. En ég áttaði mig á því undir lok ræðunnar að við værum hjartanlega sammála um það. (JÞÓ: Þú ert frjálslyndi armurinn.) Ég lít svo á, einmitt vegna þess að þetta er frekar íhaldssöm stofnun og ég veit að mörgum þykir það erfitt að við séum komin í fjarfundi og jafnvel flókið, að þetta sé rosalega mikilvægt skref sem við erum að stíga hér. Ég fagna því og styð það innilega en geri jafnframt ráð fyrir því að í framhaldinu verði hægt að þróa þetta frekar og það þurfi ekki einhverjar sérstakar ástæður til. Ég held að það væri okkur öllum til bóta.
Mig langar líka að beina því til atvinnulífsins og til stofnana að nýta fjarfundatæknina eins og kostur er. Ég held að við séum öll sammála eftir þennan tíma um að þetta kemur aldrei í staðinn fyrir mannleg samskipti en það er ýmislegt sem hægt er að sinna með fjarfundum og af því getur verið töluvert mikið hagræði. Ég er þingmaður höfuðborgarsvæðisins og eitt af okkar helstu verkefnum hefur verið samgöngumál og miklar samgöngutafir á háannatímum, sem við erum farin að sjá miklu minna af núna í Covid. En þá er þetta einmitt ein leið, að fólk sé ekki að fara á milli staða, allir á nákvæmlega sama tíma, að mæta til vinnu klukkan átta eða níu heldur er hægt að hafa vinnutímann meira fljótandi þannig að hver og einn einstaklingur geti sinnt honum meira eftir sínum fjölskylduhögum.
Að þessu sögðu þá styð ég þetta frumvarp og lít á það sem skref í rétta átt.