151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

201. mál
[17:20]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá efnahags- og viðskiptanefnd með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. — Er ég, hæstv. forseti, ekki örugglega í réttu máli?

(Forseti (BN): Forseti vonar það.)

Eins og kemur fram fékk nefndin á sinn fund fulltrúa ráðuneytisins, Skattsins og hagaðila. Með frumvarpinu er lagt til framhald á lokunarstyrkjum til þeirra rekstraraðila sem sæta þurfa lokunum eða því að láta af starfsemi eða þjónustu frá 18. september 2020. Lagt er til að úrræðið gildi fram á mitt ár 2021 og gert er ráð fyrir að taka þurfi það til endurskoðunar fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2021 með tilliti til aðstæðna og framgangs heimsfaraldursins.

Við umfjöllun málsins komu fram tillögur til breytinga á frumvarpinu með það markmið að lokunarstyrkir næðu til fleiri aðila, svo sem í veitingageiranum, sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli sökum kórónuveirufaraldursins og sóttvarnaaðgerða stjórnvalda án þess þó að hafa verið gert að loka að fullu. Samhliða umfjöllun nefndarinnar um framhald á lokunarstyrkjum fjallaði nefndin um frumvarp til laga um tekjufallsstyrki, 212. mál. Nefndin leggur til breytingar á því frumvarpi sem m.a. er ætlað að bregðast við framangreindum sjónarmiðum.

Nefndin leggur til breytingar sem eru m.a. komnar til vegna ábendinga í umsögn Skattsins. Breytingarnar fylgja með nefndarálitinu og leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum.

Undir nefndarálitið skrifa allir nefndarmenn, hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Smári McCarthy og Willum Þór Þórsson.