fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir framsögu fyrir nefndarálitinu. Það er eitt atriði, ein umsögn sem mér sýnist á öllu að komi ekki fram í nefndarálitinu og sérstök sjónarmið er það varða þá umsögn. Hún er frá fyrirtækinu HHB&W ehf. og snýr í meginatriðum að fyrirtækjum sem eru ung og passa þess vegna illa inn í viðmið um tekjur og tekjufall og slíkt sem regluverkið hefur formað.
Mig langaði að spyrja hv. framsögumann nefndarálitsins hvort þessi atriði og þessi umsögn hafi verið rædd af einhverri dýpt í nefndinni og hvort það hafi verið sérstök ákvörðun að taka ekki tillit til þessara sjónarmiða í þessu máli. Sér hv. þingmaður fyrir sér að fyrirtæki í sambærilegri stöðu og þarna er lýst eigi einhverjar aðrar lausnir að sækja?