151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

201. mál
[17:25]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Stutta svarið er: Nefndin tók þetta mjög til umfjöllunar. Það tekur smátíma að útskýra það að áhyggjur þær sem viðkomandi fyrirtæki hefur eru ekki með innstæðu. Við fengum staðfestingu frá Skattinum að þegar miðað er við hvenær rekstur hefst — það var það sem viðkomandi var að benda á — er í þessu tilfelli alltaf miðað við það þegar skráð var á launaskrá fyrirtækisins jafnvel þó að lögin séu alveg skýr um það að átta dögum áður en rekstur hefst eigi bæði að skrá á virðisaukaskattskrá og á launaskrá. Það var gert samkvæmt lagabreytingu að frumkvæði þessarar nefndar árið 2002.

Á móti er líka ákvæði í c-lið 3. gr. frumvarpsins sem grípur þessi fyrirtæki, þ.e. að í tilviki rekstraraðila sem fellur undir 3. málslið o.s.frv. er heimilt að miða við að tekjur séu a.m.k. 350.000 kr. á þessu tímabili. Það er því komið til móts við aðila þar sem rekstur hefst töluvert seinna en skráning á virðisaukaskattskrá er, eins og kom fram í umsögn viðkomandi fyrirtækis, og er þá annars vegar miðað við skráningu á launaskrá, sem ætti strangt til tekið að vera um svipað leyti, en í versta falli er tekið tillit til þess að það séu um 350.000 kr. a.m.k. sem megi reikna með að tekjur séu á mánuði á þeim starfstíma sem um ræðir.