fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni. Kannski til fyllingar þessu: Kom til sérstakrar umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd hvort það væru mörg fyrirtæki sem falla utan ramma og fá með einum eða öðrum hætti nei frá Skattinum eða fá slíka umsögn frá þeim aðila sem fjallar um þessar umsóknir? Var fjallað um það í nefndinni hvort það væri algengt að fyrirtæki, sem telja sig eiga rétt eða tilkall til stuðnings undir þessu regluverki, væru að fá neitun gagnvart sínum umsóknum? Eða eru þetta alger jaðartilvik sem um ræðir?
Og af því að ég hef tíma þá er ástæðan fyrir að ég spyr um þetta sú að mér þykir ég heyra býsna mikið um að fyrirtæki séu annaðhvort að fá neitun alveg eða þá að þau hafi þurft að verja töluverðum fjármunum í að eiga samskipti við stjórnvöld í þessu. Þannig fari stór hluti þess styrks, eða eftir atvikum láns sem um ræðir sem verið er að sækja í, í það eitt að fóðra lögfræði- eða eftir atvikum endurskoðendakostnað til þess að eiga þessi samskipti við stjórnvaldið. Hefur þetta komið upp í vinnu nefndarinnar? Hver er afstaða hv. þingmanns til þessara vandamála sem ég gef mér að hann hafi heyrt af?