fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Í þessum efnum eins og öðrum þá geta menn leitað réttar síns og það hafa komið upp slík tilvik. Ég hygg að ég fari rétt með, en það verður að segjast með örlitlum fyrirvara að nú hafi yfirskattanefnd fjögur slík mál, umkvartanir rekstraraðila sem telja sig eiga rétt á lokunarstyrkjum frá því í vor. Ég geri ráð fyrir því að yfirskattanefnd klári það fljótt og vel. Kostnaður við slíkt ætti að vera minni háttar.
Ég ætla að hrósa Skattinum alveg sérstaklega fyrir hvernig hann hefur staðið að verki sem embætti þegar kemur að lokunarstyrkjunum og öðrum úrræðum sem honum hefur verið falið að framkvæma. Það hefur verið kappkostað að gera það einfalt, gera allt ferlið gegnsætt og það sé rafrænt. Ég hygg að aðrar ríkisstofnanir og aðrir þjónustuaðilar ættu kannski að líta til skattyfirvalda og Skattsins, ríkisskattstjóra, hvernig hann stendur að verki við að þjónusta atvinnulífið og gera allt til þess að sigla með atvinnulífinu í gegnum þennan faraldur sem við öll erum að berjast við.