tekjufallsstyrkir.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar á þskj. 259 um frumvarp til laga um tekjufallsstyrki.
Eins og kemur fram í nefndarálitinu fékk nefndin á sinn fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Skattinum og ýmsum hagaðilum.
Með frumvarpinu er lagt til að einstaklingar og litlir lögaðilar í atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi sem hafa orðið fyrir minnst 50% tekjufalli á tímabilinu 1. apríl til 30. september 2020 samanborið við sama tímabil 2019 vegna heimsfaraldurs kórónuveiru eða aðgerða stjórnvalda til að hefta útbreiðslu hennar geti að nánari skilyrðum uppfylltum fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði á tímabilinu. Styrkurinn geti orðið allt að 400 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi á mánuði á tímabilinu.
Frumvarpið er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að mæta fjárhagstjóni einstaklinga og lögaðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og kemur til viðbótar aðgerðum sem þegar hefur verið ráðist í, svo sem hlutabótaleiðinni, lengingu á tímabili tekjutengdra atvinnuleysisbóta, lokunarstyrkjum og stuðningi úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Áður en ég vík að þeim breytingum sem nefndin leggur til að verði gerðar á þessu frumvarpi er mér rétt og skylt að vekja athygli á tveimur ábendingum nefndarinnar. Annars vegar tekur nefndin undir með Samkeppniseftirlitinu að mikilvægt sé að stjórnvöld hugi að almennri stefnumörkun varðandi áframhaldandi stuðningsaðgerðir og framvindu þeirra. Þar á meðal er brýnt að hugað verði að því hversu mikla þýðingu samkeppni, virk samkeppni, hefur fyrir endurreisn og viðspyrnu atvinnulífsins þegar þessum hremmingum lýkur.
Hins vegar er það ábending vegna hlutabótaleiðarinnar í ljósi þess að faraldurinn mun standa lengur yfir en við gerðum okkur vonir um þegar þetta úrræði var innleitt hér í upphafi og síðan framlengt á liðnu vori eða í rauninni í sumar. Með lögum nr. 23/2020 var kveðið á um heimild til að greiða launamanni atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli án þess að föst laun frá vinnuveitanda fyrir hið minnkaða starfshlutfall kæmu til skerðingar á fjárhæð bótanna. Skilyrði fyrir beitingu heimildarinnar á tímabilinu 15. mars til 1. júní 2020 voru að fyrra starfshlutfall hefði lækkað um 20 prósentustig hið minnsta og launamaður haldið að lágmarki 25% starfshlutfalli. Undir lok maí var hlutabótaleiðin framlengd með nokkrum efnislegum breytingum og við þá framlengingu var m.a. kveðið á um hækkun lágmarksstarfshlutfalls úr 25 í 50%. Skilyrði fyrir nýtingu úrræðisins er því að launamaður hafi verið í að lágmarki 70% starfshlutfalli.
Stjórnvöld hafa í haust þurft að grípa til sambærilegra sóttvarnaráðstafana og í fyrstu bylgju faraldursins og fjölda rekstraraðila verið gert að loka fyrirtækjum sínum eða takmarka starfsemi sína með ýmsum hætti. Nefndin telur nauðsynlegt að skapa fyrirsjáanleika um framhald hlutabótaleiðarinnar, og í raun í öllum aðgerðum til að styðja við atvinnulífið, og að hún verði framlengd a.m.k. fram á komandi vor. Einnig verði hugað að því að færa úrræðið aftur til fyrra horfs með tilliti til lágmarksstarfshlutfalls.
Herra forseti. Þá að meginefni nefndarálitsins og þeim breytingartillögum sem nefndin stendur einhuga að. Frumvarpið sem við ræðum hér um var lagt fram á Alþingi 16. október sl. ásamt frumvarpi um framhald lokunarstyrkja, sem var hér til umræðu rétt áðan. Þessum tveimur frumvörpum var vísað til nefndarinnar 20. október. Nefndin hefur lagt kapp á að hraða umfjöllun málsins enda hefur hún skilning á því að miklu máli skipti að úrræðin komist sem fyrst í gagnið. Í þessu sambandi vil ég þakka nefndarmönnum fyrir sérstaklega góða samvinnu og hversu liðleg þau öll sem með mér eru í þessari nefnd voru til að halda fundi, jafnvel á óvenjulegum tímum, helgidaga sem virka daga. Fyrir það er þakkað. Það er dæmi um það hvernig þingmenn geta sameinast í nauðsynlegum aðgerðum.
Nefndin leggur til í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið að breyting verði gerð á gildissviði frumvarpsins þannig að það taki ekki eingöngu til rekstraraðila þar sem launamenn eru þrír eða færri. Í því felst að fallið verði frá skilyrði um hámarksfjölda launamanna. Þannig geti allir rekstraraðilar sótt um tekjufallsstyrk óháð starfsmannafjölda enda uppfylli þeir önnur skilyrði fyrir styrkveitingu, m.a. um lágmarkstekjuhlutfall.
Tillaga nefndarinnar er að tímabil tekjufallsstyrkja verði lengt þannig að það nái til 31. október í stað 30. september. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað að annað úrræði, annað frumvarp, verði kynnt á næstunni sem ætlað er að koma til móts við rekstrarvanda rekstraraðila á því tímabili sem fram undan er, þ.e. þessi mánuður og vel inn í komandi ár.
Nefndin leggur til að krafan um helmingstekjufall verði rýmkuð þannig að rekstraraðili þurfi einungis að sýna fram á 40% tekjufall — og þegar ég segi einungis þá er 40% tekjufall alveg gríðarlegt — til að eiga rétt á því úrræði sem hér um ræðir. Jafnframt geti tekjufallsstyrkur í hæsta lagi numið 400 þús. kr. á hvert mánaðarlegt stöðugildi hjá rekstraraðila á tímabilinu fyrir hvern mánuð frá apríl til október og í hæsta lagi 2 millj. kr. á mánuði, sem nemur fimm stöðugildum. Þegar við tölum um stöðugildi þá eigum við við fullt starf óháð því hvort einn eða fleiri sinna því starfi hafi tekjufall rekstraraðilans verið á bilinu 40–70%. Hafi tekjufall verið meira, þ.e. yfir 70%, miðast hámark tekjufallsstyrks við 500.000 kr. á hvert mánaðarlegt stöðugildi, en sömu forsendur að öðru leyti. Samkvæmt þessu getur rekstraraðili sem hefur orðið fyrir 40–70% tekjufalli í hæsta lagi átt rétt á 14 millj. kr. í tekjufallsstyrk og rekstraraðili með 70% tekjufall getur átt rétt á allt að 17,5 millj. kr.
Jafnframt leggur nefndin til að í stað þess að tekjufall á tímabilinu 1. apríl til 31. október verði miðað við tekjur rekstraraðila sömu mánuði á árinu 2019 skuli miða við meðaltekjur hans á sjö mánaða tímabili á árinu 2019. Með þessu er leitast við að koma til móts við rekstraraðila þar sem starfsemi er sveiflukennd eftir árstíðum, auk þess sem fyrirkomulagið er einfaldara í framkvæmd. Þó er lagt til að heimilt verði að notast við annað viðmiðunartímabil ef rekstraraðili sýnir fram á að þannig fáist betri mynd að raunverulegu tekjufalli hans. Þetta getur t.d. átt við í tilviki einyrkja sem hefur verið í fæðingarorlofi eða veikindaleyfi á stórum hluta rekstrarársins 2019.
Nefndin leggur til að hafi rekstraraðili hlotið lokunarstyrk samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila á bilinu 1. apríl til 31. október megi draga hann frá tekjum rekstraraðila á því tímabili þegar tekjufall hans er metið. Að öðrum kosti getur sú staða komið upp að rekstraraðili falli utan úrræðis tekjufallsstyrkja af þeirri ástæðu einni að hann hefur hlotið lokunarstyrk. Ef lokunarstyrkur sem rekstraraðila hefur verið ákvarðaður, vegna þess að honum var gert að loka samkvæmt tilmælum stjórnvalda, hefði þau áhrif að tekjufall hans yrði lægra en 40% gæti niðurstaðan orðið sú að fjárhagslega kæmi verr út fyrir viðkomandi að hafa fengið lokunarstyrk en ekki.
Við mat á rekstrarkostnaði á tímabilinu ber rekstraraðila, samkvæmt tillögu nefndarinnar, að draga frá stuðning sem hann kann að hafa hlotið samkvæmt lögum um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, að því marki sem hann hefur hlotið slíkan stuðning vegna launa á sama tímabili. Tilgangur þessa er að koma í veg fyrir tilvik þar sem rekstraraðili fái sama rekstrarkostnað tvíbættan úr ríkissjóði.
Herra forseti. Ég hef orðið var við nokkurn misskilning þegar kemur að þessu. Hér er eingöngu átt við það að sá stuðningur sem menn fengu vegna uppsagna kemur ekki beint til frádráttar hugsanlegum tekjufallsstyrk heldur telst ekki til rekstrarkostnaðar. Það er það sem er verið að vísa til og skiptir máli. Það væri enda óeðlilegt að telja það rekstrarkostnað sem menn hafa ekki orðið fyrir á þessu tímabili.
Vert er að vekja athygli á því að nefndin leggur til breytingar á frumvarpinu þannig að rekstraraðilum sem hófu starfsemi eftir 1. apríl á þessu ári verði gert mögulegt að sækja um tekjufallsstyrk fyrir tímabilið frá 1. september til 31. október, enda nemi tekjufall þeirra á því tímabili að lágmarki 40%, miðað við tekjur þeirra frá því að þeir hófu starfsemi fram til 1. september. Nefndin telur að sanngirnisrök og samkeppnissjónarmið mæli með því að þessir rekstraraðilar sitji ekki eftir á þeirri forsendu einni að þeir hafi hafið rekstur eftir ákveðinn dag. Nefndin telur nauðsynlegt að koma til móts við þá að því leyti sem hér er lagt til.
Við umfjöllun nefndarinnar kom í ljós að með hækkun fjárhæða, líkt og nefndin leggur til, er ekki unnt að byggja eingöngu á reglum um minni háttar aðstoð þannig að tekjufallsstyrkir samrýmist skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum. Vegna þessa leggur nefndin til að 10. gr. frumvarpsins breytist þannig að þar verði kveðið á um að heildarfjárhæð tekjufallsstyrkja til tengdra rekstraraðila geti ekki numið hærri fjárhæð en 120 milljónum, en ákvæðið er sömu gerðar og 2. efnismálsgrein 4. gr. frumvarpsins sem við fjölluðum um hér áðan, þ.e. í máli 201, um framhald á lokunarstyrkjum.
Að lokum leggur nefndin til að við frumvarpið bætist nýtt ákvæði þess efnis að Skatturinn skuli birta opinberlega upplýsingar um hvaða lögaðilum hafa verið ákvarðaðir tekjufallsstyrkir. Í ljósi þeirra breytinga sem lagðar eru til á gildissviði frumvarpsins telur nefndin eðlilegt að aðgangur almennings að upplýsingum um ráðstöfun opinbers fjár sé hafður að leiðarljósi. Ákvæðið á fyrirmynd í 15. gr. laga um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Ákvæðið tekur að meginreglu einungis til lögaðila en ekki einstaklinga. Ekki verði birtar upplýsingar um fjárhæð styrks. Nemi styrkur jafnvirði 100 þúsund evra eða meira verði þó ávallt birtar fjárhæðir
Allar þessar breytingar kalla á aukin útgjöld ríkissjóðs umfram það sem áætlað var. Samkvæmt mati sem fjármála- og efnahagsráðuneytið vann fyrir nefndina má áætla að heildaráhrif tekjufallsstyrkja á ríkissjóð verði allt að 23,3 milljarðar. Þó er talið óhætt að fullyrða að það séu efstu mörk þeirra útgjalda. Þetta kemur vel fram í minnisblaði sem ráðuneytið sendi nefndinni og á að vera aðgengilegt á vef þingsins undir þessu þingmáli. Og bara til að gefa smáhugmynd um þetta þá er talið að styrkur til ferðaþjónustufyrirtækja geti orðið allt að samtals 14 milljarðar, til einyrkja í ferðaþjónustu 300 milljónir, menningarstarfsemi liðlega 8 milljarðar, til annarra greina um 300 milljónir. Þetta er auðvitað sagt með þeim fyrirvara að talið er að þetta séu svona ystu mörk þessa kostnaðar.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.
Smári McCarthy skrifar undir álit þetta með fyrirvara, sem hann hyggst gera grein fyrir í ræðu hér á eftir.
Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn, sá er hér stendur, Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy, með fyrirvara, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Willum Þór Þórsson.