tekjufallsstyrkir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni framsöguna með nefndarálitinu. Það er auðvitað að mörgu að hyggja í þessum efnum en það er eitt atriði sem mig langar kannski sérstaklega að biðja hv. þingmann um að koma inn á, þ.e. hvort eitthvað hafi verið skoðuð sjónarmið, í fljótu bragði man ég ekki eftir umsögn þar sem tekið var á því, í sambandi við fyrirtæki sem eru í þeirri stöðu að hafa aukið umfang sitt, ef svo má segja, á milli tímabila. Tökum bara sem dæmi fyrirtæki í veitingarekstri sem fjölgar útsölustöðum, en þetta gæti átt við um marga aðra geira. Ég er að tala um fyrirtæki sem er með einn útsölustað frá fyrra tekjuviðmiðunartímabilinu en er komið með fjóra útsölustaði ári síðar og verður fyrir gríðarlegu tekjufalli en er samt yfir tekjuviðmiðum þegar velta kennitölunnar er skoðuð þó að augljóst sé að tekjufallið fyrir hverja starfsstöð sé mögulega langt yfir því sem viðmiðunin er hér. Eru einhver ráð fyrir slíka aðila undir því regluverki sem nú er verið að leggja til að forma?