151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

tekjufallsstyrkir.

212. mál
[17:56]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Nú skal ég játa að ég minnist þess ekki að nokkur umsagnaraðili eða nokkur af þeim fjölmörgu gestum sem komu á fundinn eða nokkur annar nefndarmaður hafi haft hugarflug til að fara í þessa æfingu. Nú kann að vera að hv. þingmaður sé með eitthvert ákveðið dæmi í huga en ég segi: Sem betur fer er það þannig að það eru fjölmörg fyrirtæki sem eru í allsæmilegum málum og það eru fjölmörg fyrirtæki, ekki síst í verslun, sem hafa jafnvel náð að auka tekjur sínar á síðustu mánuðum. Ég nefni t.d. alveg örugglega byggingarvöruverslanir, ég nefni vefverslanir af ýmsu tagi o.s.frv. Það sem við erum að reyna að gera með þessu frumvarpi, með útvíkkun þessa frumvarps, er að reyna að rétta hjálparhönd, svo að menn hafi eitthvert haldreipi, menn sem eru að berjast fyrir lífi sínu í atvinnurekstri. Við erum að reyna að koma í veg fyrir að það molni undan íslensku atvinnulífi svo að til verði starfhæf fyrirtæki þegar þessum faraldri lýkur og við getum þannig sem þjóð átt hér alvöruviðspyrnu. Viðspyrna mun ekki eiga sér stað nema okkur takist það verkefni sem a.m.k. efnahags- og viðskiptanefnd er algjörlega einhuga í, ég þori að fullyrða það, að vernda og verja grunninnviði íslensks viðskiptalífs. Eins og hv. þingmaður veit, ekki síst vegna reynslu sinnar í atvinnulífinu, verða verðmætin til þar.