151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

tekjufallsstyrkir.

212. mál
[17:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni svarið þó að tónninn í því hafi kannski verið aðeins annar en ég helst reiknaði með. Ég get ekki ímyndað mér að á neinn máta hafi mátt skilja fyrirspurn mína hér áðan á þann veg að ég hefði efasemdir um nauðsyn þessarar aðgerðar, heldur var ég að spyrja út í afmarkað mál sem hefur greinilega ekki verið rætt í nefndinni en raunveruleg dæmi eru um. Án þess að ég vilji fara í það hér í pontu eru veitingafyrirtæki sem hafa fjölgað útsölustöðum milli þessara tímabila og finna sig nú í þeirri stöðu að vera í algjöru tekjufalli og fá síðan þessar lokunarkröfur sóttvarnayfirvalda ofan í þá súru stöðu sem var komin upp. Þau finna sig í þeirri stöðu að vera með tekjur ofan við þessi tekjuviðmið innan kennitölunnar en það er vegna þess að umfang rekstursins hefur aukist á milli tímabila, útsölustöðum hefur fjölgað og þar fram eftir götunum. Mig langar að spyrja hv. þingmann núna, án þess að ég nefni dæmin hér í pontu, þegar það liggur fyrir að þessi dæmi eru til, hvort hann telji ástæðu til að skoða svona mál sérstaklega eða hvort það sé einhver farvegur fyrir svona rekstraraðila. Þetta eru örugglega ekki mörg dæmi en slíkir rekstraraðilar lenda í alveg sama tekjufallinu hvað varðar hverja rekstrareiningu þótt heildarvelta innan kennitölu fari ekki niður um þau 50% sem eru áskilin í þessu máli. Telur hv. þingmaður sem sagt ástæðu til að skoða svona jaðartilvik?