ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn. .
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 sem mælir fyrir um að reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1042 frá 23. júlí 2018 um breytingu á reglugerð nr. 965/2012 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða stuðningsáætlanir, sálrænt mat á flugáhöfn, sem og kerfisbundna og handahófskennda skimun fyrir geðvirkum efnum til að tryggja heilbrigði flugliða og öryggis- og þjónustuliða og að því er varðar uppsetningu á landslagsgreiningarkerfi í nýlega framleiddar flugvélar, knúnar hverfihreyflum með 5.700 kg skráðan hámarksflugtaksmassa eða minna og sem samþykktar hafa verið til að bera sex til níu farþega verði felldar inn í samninginn.
Reglugerðinni sem felld er inn í EES-samninginn með ákvörðun 25/2020 er ætlað að stemma stigu við þeirri hættu sem kann að stafa af því að flugverjar sinni störfum sínum um borð í loftfari undir áhrifum geðvirkra efna eða ef þeir eru ófærir um að sinna störfum sínum vegna meiðsla, þreytu, lyfja, veikinda eða af öðrum keimlíkum orsökum. Tiltekur reglugerðin m.a. skyldu flugrekenda til að setja sér stefnu um forvarnir og verkferla til að koma í veg fyrir misnotkun geðvirkra efna og skyldu lögbærra landsyfirvalda (Samgöngustofa hér á landi) til að tryggja skimun fyrir geðvirkum efnum hjá flugverjum, þar með talið alkóhóli, í skoðunum loftfara á hlaði.
Í reglugerðinni er einnig fjallað um framkvæmd sálfræðimats á flugmönnum áður en þeim er heimilt að hefja störf og innleiðingu á stuðningsáætlun fyrir flugmenn sem ætlað er að styðja við og hjálpa þeim við að þekkja og bregðast við hvers konar vanda sem gæti haft áhrif á getu þeirra til að sinna störfum sínum af öryggi. Þá tiltekur reglugerðin einnig kröfur til landslagsgreiningarkerfis fyrir flugvélar sem eru með hámarksflugtaksmassa yfir 5.700 kg.
Efni reglugerðarinnar byggist að miklu leyti á viðbrögðum við Germanwings flugslysinu svonefnda sem átti sér stað árið 2015.
Ég legg til, virðulegi forseti, að að aflokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.