151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

217. mál
[18:30]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2020 sem mælir fyrir um reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2019/630 frá 17. apríl 2019 um breytingu á reglugerð nr. 575/2013, að því er varðar lágmarkstryggingarvernd fyrir tapi vegna vanefndra áhættuskuldbindinga verði felld inn í samninginn. Reglugerðinni sem felld er inn í EES-samninginn með ákvörðun nr. 16/2020 er ætlað að breyta ákvörðun reglugerðar nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki um eiginfjárkröfur vegna áhættuskuldbindinga í vanskilum.

Lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum verður gert að draga hluta lána í vanskilum frá eiginfjárgrunni ef ekki eru til staðar varasjóðir til að mæta væntu tapi af lánunum. Lán teljast í grófum dráttum í vanskilum ef lántaki hefur ekki efnt greiðsluskyldu í 90 daga eða ætla má af öðrum sökum að hann muni ekki standa í skilum. Umfang frádráttarins ræðst af því hvort um tryggt eða ótryggt lán er að ræða og hve lengi það hefur verið í vanskilum. Frádrátturinn gildir aðeins um lán sem eru veitt eftir að gerðin tekur gildi svo að ekki þarf að endurreikna eiginfjárgrunn vegna áður veittra lána.

Innleiðing gerðarinnar getur aukið hvata lánastofnana til að vinna úr lánum í vanskilum, fremur en að láta þau standa í von um að þurfa ekki að viðurkenna bókhaldslegt tap, en ekki er talið að heildaráhrif á eiginfjárkröfur verði mikil. Ekki er gert ráð fyrir að innleiðing gerðarinnar hafi veruleg áhrif á stjórnsýslu eða fjárhag ríkisins.

Ég legg til, virðulegur forseti, að að aflokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.