151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

218. mál
[18:32]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar nr. 60/20, sem mælir fyrir um að eftirfarandi gerðir verði felldar inn í samninginn. Um er að ræða:

a. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1286/2014 um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta,

b. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/2340 um breytingu á reglugerð nr. 1286/2014 að því er varðar gildistökudag hennar,

c. framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1904 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1286/2014 að því er varðar vöruinngrip,

d. framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/653 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1286/2014 með því að mæla fyrir um tæknilega eftirlitsstaðla að því er varðar framsetningu, inntak, yfirferð og endurskoðun lykilupplýsingaskjala og skilyrðin fyrir því að uppfylla kröfur um að láta slík skjöl í té,

e. framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2019/1866 um breytingu á framseldri reglugerð 2017/653 til að laga umbreytingarfyrirkomulag framleiðenda pakkaðra og vátryggingatengdra fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta.

Með reglugerð nr. 1286/2014 er lögð sú skylda á herðar þeirra sem veita ráðgjöf um eða selja pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta að semja og gera almennum fjárfestum tiltækt lykilupplýsingaskjal. Markmiðið er að auðvelda almennum fjárfestum að bera saman lykilupplýsingar ólíkra vara og skilja séreinkenni þeirra, meðfylgjandi áhættu og kostnað. Í lykilupplýsingaskjali skal draga fram meginatriði útboðslýsingar um viðkomandi fjárfestingarvöru, svo sem heiti hennar og kostnað sem tengist fjárfestingu í vörunni og upplýsingar um hvernig og við hvern almennur fjárfestir getur kvartað yfir vörunni eða framleiðanda hennar. Þá ber framleiðanda vörunnar að kynna lykilupplýsingaskjalið fyrir almennum fjárfesti áður en ákvörðun er tekin um viðskipti. Með reglugerðinni er Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni (EIOPA) veittar heimildir til að banna eða takmarka við vissar aðstæður markaðssetningu, dreifingu og sölu tiltekinna fjárfestingarafurða eða tiltekna vátryggingastarfsemi. Í tilviki Íslands fer eftirlitsstofnun EFTA með það vald, í samræmi við þá lausn sem ákveðin var í tengslum við upptöku stofnreglugerðar EIOPA í EES-samninginn.

Reglugerð 2016/2340 er breytingarreglugerð við áðurnefnda reglugerð 1286/2014 sem frestaði gildistöku reglugerðarinnar innan ESB til 1. janúar 2018.

Framseld reglugerð 2016/1904 varðar nánari útfærslu á heimildum eftirlitsstofnana til afurðainngripa samkvæmt reglugerð 1286/2014, framseld reglugerð 2017/653 varðar tæknistaðla við ákvæði reglugerðar nr. 1286/2014, framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2019/1866 felur svo í sér breytingu á framseldri reglugerð 2017/653 er varðar tæknistaðla í tengslum við ákvæði reglugerðar 1286/2014.

Ég legg til, virðulegur forseti, að að aflokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.