ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn. .
Virðulegur forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2020 sem mælir fyrir um að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/50/ESB frá 22. október 2013 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB um útboðs- og skráningarlýsingu sem birta skal við almennt útboð verðbréfa eða þegar þau eru tekin til skráningar og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2007/14/EB um nákvæmar reglur til framkvæmdar tilteknum ákvæðum tilskipunar 2004/109/EB.
Með tilskipuninni sem felld er inn í EES-samninginn með ákvörðun nr. 81/2020 eru gerðar breytingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað, þ.e. á Transparency-tilskipuninni. Helstu breytingarnar eru þær að skilgreiningu á hugtakinu „útgefandi“ er breytt á þá leið að einstaklingar geti einnig fallið þar undir, frestur útgefanda til að birta opinberlega árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins er lengdur úr tveimur mánuðum í þrjá og útgefendum verðbréfa gert skylt að gera ársreikninga og árshlutareikninga aðgengilega í tíu ár í stað fimm ára áður. Þá eru möguleikar útgefenda verðbréfa til að velja sér heimaaðildarríki auknir.
Ég legg til, virðulegur forseti, að að aflokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.