151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

störf þingsins.

[10:36]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Eitt af því sem við leiðum hugann frekar að við þær aðstæður sem við erum að kljást við er lýðheilsa. Lýðheilsa er fjölþætt og kallar á lausnir á öllum sviðum samfélagsins, og snýr að líkamlegu, félagslegu og andlegu heilbrigði. Þar eru forvarnir afar mikilvægar og auðvitað er maður hugsi yfir þeim afleiðingum sem það kann að hafa að stoppa allt íþrótta- og tómstundastarf barna og unglinga, eins og við höfum gert. Við eigum að reyna með ráðum og dáð að koma því starfi í gang sem fyrst. Um leið þakka ég og hrósa stjórnvöldum og skólafólki, ekki síst, fyrir að halda skólastarfi gangandi. Það er ómetanlegt og afar mikilvægt framlag til lýðheilsu.

Ég vil nota tækifærið hér, virðulegi forseti, til að vekja athygli á skilaboðum Geðhjálpar um undirskriftasöfnun sem er í gangi um að setja geðheilbrigði í forgang. Ég vil um leið hnykkja á þeim aðgerðum sem miða að því að hlúa að geðheilbrigði. Þessi skilaboð eru mikilvæg, ekki síst á þessum tímum og minna okkur um leið á mikilvægi forvarnastarfs. Ég hef auðvitað ekki tíma hér, á þessum tveimur mínútum, til að fara yfir allar nýjar aðgerðir en allar eru þær góðar. Ég vil nefna heildarúttekt á umfangi og framkvæmd geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi sem er algerlega tímabær til að ná utan um málaflokkinn og tryggja samhæfingu ólíkra málefnasviða og í framhaldinu gagnsæi útgjalda og samspil við aðra þætti samfélagsins. Aukinn stuðningur og fræðsla til foreldra og aukin áhersla á þennan þátt í skólakerfinu og stofnun Geðráðs er mikilvægur liður í að fylgja eftir stefnumótun og aðgerðum á þessu sviði.