störf þingsins.
Virðulegi forseti. Siðfræði lífs og dauða er titill bókar eftir Vilhjálm Árnason siðfræðing og fjallar um það þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir í heilbrigðiskerfinu. Við búum nú við hörðustu sóttvarnaaðgerðir í lýðveldissögu Íslands, borgara- og mannréttindi, ferðafrelsi og atvinnufrelsi hafa verið og eru enn stórskert. Á opnum velferðarnefndarfundi í gærmorgun kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að bóluefni við Covid er ekkert endilega á næsta leiti og eins er ekkert víst að það verði eins áhrifaríkt og vonir standa til. Á sama tíma stöndum við frammi fyrir þeirri staðreynd að þó nokkrar líkur eru á að það muni koma fleiri bylgjur. Veirufrítt samfélag er í besta falli tálsýn og efnahagshöggið með tilheyrandi atvinnuleysi hefur nú þegar skapað alvarlegt ástand. Eins er ljóst að það eru þeir sem minnst hafa á milli handanna sem koma til með að verða verst úti og þola mestar afleiðingar hertra aðgerða. Við stöndum í raun í auknum mæli frammi fyrir flóknum og risastórum spurningum sem tengjast siðfræði lífs og dauða.
Það er mjög ánægjulegt að búið sé að bregðast hratt og örugglega við óskum þingmanna um að fá meiri umræður um Covid hér í þingsal með heilbrigðisráðherra en ég myndi líka vilja sjá svipaðan dagskrárlið með forsætisráðherra. Núna fer að aukast hitinn og vandamálin og viðfangsefnin hvað varðar Covid verða flóknari. Við þurfum að skoða málið enn þá heildrænna. Við þurfum að geta átt opið, einlægt og gegnsætt samtal um hliðaráhrif aðgerðanna á íslenskt samfélag. Við þurfum að fá að spyrja heimskulegra spurninga án þess að óttast ofsafengin viðbrögð og án ótta við þöggun. Það er gott og mikilvægt að vera bjartsýn og vongóð en við þurfum líka að vera raunsæ. Það er á ábyrgð stjórnvalda og hlutverk þeirra að setja fram langtímasviðsmyndir með viðbragðsáætlunum. (Forseti hringir.) Óvissan er óskaplega þungbær fyrir mjög marga. Það þarf að vinna í átt að því að eyða eins mikilli óvissu og ótta og hægt er um framtíðina fyrir þjóðina.