störf þingsins.
Forseti. Heimurinn á við mörg vandamál að stríða. Eitt þeirra eru öfgar og að því er virðist meiri öfgar en áður. Það er hins vegar ekki rétt. Maðurinn hefur oft látið leiða sig út í öfgar. Síðari heimsstyrjöldin ætti enn að vera minnisvarði um skaðsemi öfganna. Öfgar dagsins í dag eru nákvæmlega þær sömu og alltaf áður, knúnar áfram af ótta við hið ókunna, við það sem er öðruvísi; annar húðlitur, önnur kynhneigð, önnur trú eða aðrar skoðanir. Afleiðingar öfganna eru misrétti, útskúfun, einelti og stríð, afleiðingar ákvarðana sem eru teknar vegna ótta við hið ókunna, ákvarðana sem eru teknar vegna þess að við viljum ekki skilja.
Óttinn og skilningsleysið er skiljanlegt, það er mannlegt, eðlilegt. En hvað við gerum til að yfirstíga óttann getur hins vegar verið óskiljanlegt, ómannúðlegt og óeðlilegt. Til er fólk sem kann að næra ótta okkar og ljúga að okkur á hárréttu augnabliki þannig að við trúum bókstaflega hverju sem er. Tækin til að ljúga eru líka orðin gríðarlega þróuð. Hægt er að nota þau til að mála raunveruleikann efa og sýna að hvítt og gyllt sé blátt og svart.
Öfgar dagsins í dag eru lygar sem allt of margir trúa. Jafnvel þó að sýnt sé fram á lygina svart á hvítu þá er það bara sagt falsfrétt. Myndbandið sýnir vissulega gyllt á bláu, það sjá allir sem horfa á það. Fyrir þremur dögum birtist t.d. myndband sem sýndi forsetaframbjóðanda segja: Halló, Minnesota. Á skilti fyrir aftan hann stóð hins vegar: Flórída. Einhverjir höfðu falsað myndbandið með einfalt markmið í huga, að sá efa, að snúa út úr, að ljúga.
Það er ekki fyrir hvern sem er að greiða úr öllum þeim lygaflækjum sem heimurinn leggur fyrir okkur á hverjum degi. Til þess eru fjölmiðlar og nú meira en nokkru sinni áður þurfum við öfluga og óháða fjölmiðla en ekki stjórnmálamenn sem stimpla fréttir fjölmiðla sem falsfréttir eftir hentugleika.