störf þingsins.
Herra forseti. Kjördæmavikunni eða kjördæmadögum er nýlokið. Þingmenn höfðu tækifæri til að heimsækja sveitarfélögin og sveitarstjórnir rafrænt, eins og gefur að skilja. Sveitarfélögin eru mikilvægar einingar í okkar samfélagi og hafa sannarlega tekið á sig hluta af þeim þunga sem kórónuveirufaraldurinn hefur lagt á herðar þjóðarinnar. Þau standa í nærþjónustu og eru þannig með puttann á púlsinum og það er til að mynda engum blöðum um það að fletta að kennarar, sem sveitarfélögin eru með í vinnu, og skólarnir hafa verið mikilvægir í þessum faraldri. Sveitarfélögin eru nefnilega ekki bara stjórnsýslueiningar, þau eru ekki heldur fyrirtæki, þau eru samfélög. Það hefur líka komið í ljós hversu miklu máli stærri einingar sveitarfélaga skipta. Það skiptir miklu máli að þau geti unnið saman eða sameinast eftir atvikum þar sem það á við. Nægir þar að nefna nýlega sameiningu á Austurlandi. Þessar sameiningar og hinn aukni slagkraftur stærri eininganna mun líka skipta máli.
En við þurfum að fylgjast með stöðu sveitarfélaganna og halda áfram að fylgjast með því hvernig þau koma út úr faraldrinum. Samtalið um tekjustofna sveitarfélaganna milli ríkis og sveitarfélaga þarf að halda áfram og það þarf að vera opið og gagnvirkt. Við verðum að líta á sveitarfélögin sem samstarfsaðila ríkisvaldsins, sem samherja, til að viðhalda áfram öflugu og traustu velferðarsamfélagi á Íslandi.