störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara inn í umræðu sem á eftir að eiga sér stað hér síðar í dag, eins og síðasti ræðumaður, en ég vildi þó í tilefni af ummælum sem hér hafa fallið um heilbrigðismálin og sóttvarnaráðstafanir og annað þess háttar taka undir hugleiðingar sem hér komu fram áðan hjá hv. þm. Söru Elísu Þórðardóttur. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur að vera meðvituð um það að við erum að grípa til mjög harðra sóttvarnaráðstafana þar sem eru miklar takmarkanir á svigrúmi fólks og miklu meiri en við höfum kynnst áður í lýðveldissögunni, eins og hv. þm. Sara Elísa Þórðardóttir nefndi. Við viðurkennum auðvitað að farsótt og alvarlegur inflúensufaraldur kallar á aðgerðir af hálfu hins opinbera. Það er eðlilegt og heimilt að sóttvarnayfirvöld grípi til ákveðinna aðgerða af því tilefni en það þýðir hins vegar ekki að heimilt sé að gera hvað sem er. Þar verður að vanda til verka og við þurfum að fara yfir það með gagnrýnum hætti.
Áður en ég lýk máli mínu ætla ég aðeins að víkja að ummælum hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar hér rétt áðan í sambandi við stöðu sveitarfélaga. Það er rétt, og ástæða til að taka undir það sem hv. þingmaður sagði, að ríki og sveitarfélög þurfa að sjálfsögðu að vinna saman að úrlausn þess vanda sem uppi er. Það skiptir máli að aðgerðir þessara tveggja stjórnsýslustiga séu samstilltar þegar kemur að viðbrögðum við Covid og við eigum að vinna saman að lausn mála. En við verðum líka að huga að því til frambúðar hvernig verkaskipting og tekjuskipting er milli þessara tveggja stiga (Forseti hringir.) því að það verður að vera þannig að völdum og verkefnum fylgi líka ábyrgð í fjárhagslegum skilningi.