um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég vil ræða hér fundarstjórn forseta vegna ræðu hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar hér áðan sem snerist um þingmál mitt, þingsályktunartillögu um aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi. Ég geri athugasemdir við að þingmanninum hafi ekki verið leiðbeint um það að í þingsköpum er liður sem heitir að eiga orðastað við þingmann. Ef hv. þingmaður vill ræða við mig um þingmál mitt og gera athugasemdir við þingmál, sem 18 þingmenn hér í þessum sal styðja heils hugar, ætti hann að nota liðinn að eiga orðastað við þingmann. Það að hann noti liðinn störf þingsins til þess að fara með rangfærslur í þessu máli tel ég ámælisvert, herra forseti. Ég tel að leiðbeina þurfi hv. þingmanni um þingsköpin sem greinilegt er að þingmaðurinn þekkir ekki nægilega til þess að geta fært rök fyrir máli sínu sem er afvegaleiðing og snýst um að afbaka staðreyndir.