151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[11:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á því að þakka fyrir snögg og góð viðbrögð forseta við ábendingu hv. þm. Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur. Ég er sammála forseta. Ég held að það stoði lítið að leiðbeina hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni því að hann hefur setið hér síðan 2013. Kannski þarf hann endurmenntun, kannski ekki. Nei, ég held að þetta hafi verið með vitund gert, með ráðum gert, vegna þess að ólíkt því sem kom fram í máli þingmannsins hér í störfum þingsins þá snýst þetta ekki um ást hans á stöðu heilbrigðiskerfisins. Þetta snýst um andstöðu hans við rétt kvenna til þungunarrofs. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Sú afstaða er skjalfest í nefndaráliti hans þar sem hann lagðist gegn frumvarpi heilbrigðisráðherra, þar sem hann skjalfesti að afstaða hans er sú sama og afstaða pólskra stjórnvalda. Það er afstaða sem við í þessum sal þurfum að standa gegn, hvort sem hún birtist í Póllandi eða hjá þingmönnum Suðurnesja. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)