151. löggjafarþing — 16. fundur, 5. nóv. 2020.
sóttvarnarráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Samkomulag er um fyrirkomulag þessarar umræðu sem að formi til er munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. Eftir framsögu ráðherra eiga allir flokkar rétt á andsvari eða innleggi í umræðuna tvisvar sinnum, þ.e. í tvær mínútur og síðan eina mínútu og hæstv. ráðherra sama tíma til svara.