151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:16]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir tækifærið til að ræða þessi mál hér á þingi. Það hefur gerst áður og þá að frumkvæði forsætisráðherra að málefni sem lúta að aðgerðum vegna Covid-19 hafi verið rædd sérstaklega hér í þingsal. Eins og fram hefur komið í máli forseta er efnt til þessarar umræðu núna og samkvæmt mínum upplýsingum er gert ráð fyrir að það verði gert aftur með ákveðnu millibili á næstu vikum. Ég vil bara fagna þeirri málaleitan og því skipulagi.

Covid-19 heimsfaraldurinn náði Íslandi í lok febrúar og við höfum þess vegna átt í baráttu við veiruna með nokkrum hléum í nærri níu mánuði. Það sér ekki enn fyrir endann á henni nema síður sé, þar sem faraldurinn er enn í örum vexti á heimsmælikvarða og meginland Evrópu hefur ekki farið varhluta af þeirri aukningu. Á Íslandi hafa um 5.000 manns smitast, þar af u.þ.b. helmingur í þeirri bylgju sem nú stendur yfir og hófst um miðjan september. Talið er að um 2% þjóðarinnar hafi smitast af veirunni. Það er því augljóst að það er mjög langt í land að nægilega margir hafi smitast af veirunni til að það út af fyrir sig verði vörn í samfélaginu gegn Covid-19. Talið er að svokallað hjarðónæmi náist fyrst þegar 40–70% af íbúum landsins hafi mótefni gegn veirunni svo það er nánast óhugsandi að við náum þangað í framtíðinni nema með hjálp bóluefnis, sem er hin leiðin.

Framleiðsla á bóluefni er atriði sem við Íslendingar höfum takmörkuð ef nokkur áhrif á en við höfum tryggt okkur aðgengi að bóluefni í samvinnu við önnur Norðurlönd eins og fram kom í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær. Það mun því berast hingað til lands jafn skjótt og það er tilbúið. Björtustu vonir standa enn til að það geti gerst fljótlega upp úr áramótum en ég tel ráðlegt að við búum okkur undir það að liðið geti talsvert lengri tími áður en bóluefni verður okkur sú björg sem við öll vonumst til. Á meðan við bíðum eftir því er fátt annað í stöðunni en að beita sóttvarnaaðgerðum til að hamla útbreiðslu veirunnar, verja áhættuhópa eins vel og mögulegt er og varna því að heilbrigðiskerfið yfirfyllist með afleiðingum sem ekkert okkar myndi vilja sætta sig við.

Hingað til hefur það tekist bærilega og í könnun sem var gerð af embætti landlæknis hjá heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum dagana 2.–3. nóvember var matið það að staðan væri viðráðanleg en mjög viðkvæm og lítið mætti út af bregða. Þegar mönnun var skoðuð sérstaklega hafði Landspítali færst frá rauðu stigi yfir í appelsínugult eða gult. Eitt hjúkrunarheimili var á rauðu, tvær stofnanir á grænu og sjö á gulu, en þegar metin voru gæði og öryggi sérstaklega var engin stofnun á rauðu stigi en átta á gulu og þrjár á grænu. Þetta er vaktað með reglubundnum hætti.

Á þeim tíma sem faraldurinn hefur herjað á landsmenn hefur samstarf mitt við sóttvarnalækni, landlækni og aðra sérfræðinga verið mjög mikið og gott. Ég hef ekki séð ástæðu til annars en að fylgja ráðum sóttvarnalæknis í einu og öllu og ríkisstjórnin hefur staðið einhuga að þeirri nálgun. Það þýðir þó ekki að ráðum sé fylgt án nauðsynlegrar gagnrýni og umræðu. Við höfum tekið tillit til ýmissa annarra sjónarmiða en sóttvarna en slík mál hafa alltaf verið leyst með þéttu samráði og oft með mörgum símtölum á dag.

Eins og ég sagði í upphafi hefur faraldurinn því miður dregist á langinn og við getum ekki sagt að við sjáum fyrir endann á honum enn. Þótt stuðningur hafi verið mikill við aðgerðir yfirvalda hingað til við að hefta útbreiðslu veirunnar er farið að gæta þreytu hjá sífellt fleirum og raddir heyrast sem draga nauðsyn aðgerðanna í efa. Það er ekki óeðlilegt í lýðræðissamfélagi og er þróun sem við sjáum alls staðar í löndunum í kringum okkur. Í slíkri stöðu er opin umræða mikilvægust sem og fyrirsjáanleiki aðgerða, sem ítrekað hefur verið kallað eftir, og ég deili þeirri sýn að fyrirsjáanleiki eigi að vera eins mikill og veiran gefur okkur færi á, og að gagnsæið sé þannig að almenningur í landinu skilji af hverju ákvarðanir eru teknar. Þar getum við alveg örugglega gert enn betur en við gerum núna þó að við höfum allan tímann lagt mjög mikla áherslu á upplýsingagjöf og umræðu. Nú er unnið að því innan ríkisstjórnarinnar og hjá sóttvarnayfirvöldum að auka þetta tvennt og marka stefnu til eins langs tíma og við getum, sem auðveldar okkur að þræða þennan gullna meðalveg; að halda faraldrinum í skefjum en gæta á sama tíma meðalhófs í takmörkunum og að þær valdi ekki meira tjóni fyrir íslenskt samfélag en þeim er ætlað að koma í veg fyrir.

Ég vil í lokin þakka forseta fyrir umræðuna og hlakka til að heyra viðbrögð og athugasemdir hv. þingmanna.