sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ekkert mál er stærra sem stendur en heimsfaraldurinn. Umræðan í dag er þess vegna ekki bara gagnleg heldur nauðsynleg. Stærstu verkefnin sem við okkur blasa eru þrjú; að verja heilbrigði þjóðarinnar; verja heilbrigðiskerfið, en við erum að horfa á dýpstu kreppu í 100 ár; og þriðja verkefnið lýtur að líðan þjóðar, afleiðingum til skemmri tíma og um leið lengri. Öll eru þessi verkefni stór og aðgerðir til að verja þessa hagsmuni verða að ganga hönd í hönd. Hvers vegna báðum við um þessa umræðu? Í ástandi sem þessu er það ekki bara réttur þingsins að eiga samtal við ráðherra hér inni í þingsal, um forsendur og um sviðsmyndir, heldur er það skylda þingsins. Það er skylda þingsins að rækja eftirlitshlutverk gagnvart stjórnvöldum. Felst í því einhver afstaða okkar til tiltekinna sóttvarnaaðgerða, að við teljum þær of harðar eða of mildar? Samtalið snýst ekki um það heldur um upplýsingagjöf og um forsendur að baki ákvörðunum. Skoðanir eru skiptar innan þings eins og annars staðar, enda erum við ekki öll bara í því hlutverki að vera almannavarnir á þessu stigi málsins, við erum jú öll að verða sóttvarnafræðingar, lengra gengin í þeim fræðum.
Umræðan hefur mikið snúist um samspil sóttvarnalæknis annars vegar og heilbrigðisráðherra hins vegar. Lagaleg og pólitísk álitaefni eru hins vegar fleiri og fleiri en sóttvarnalögin, fleiri en um heimildir og valdmörk þar. Önnur grundvallarspurning lýtur að samspili þings og ráðherra og það er ástæða þess að Viðreisn lagði fram þessa ósk. Forsenda þess að við getum sinnt skyldu okkar um eftirlitið og um samtalið er upplýsingagjöfin. Ég ætla ekki að standa hér og segja að ekkert samtal og engin umræða hafi átt sér stað en þunginn hefur verið í umræðu um efnahagsaðgerðirnar. Kraftmiklum sóttvarnaaðgerðum verða að fylgja kraftmiklar efnahagsaðgerðir. Þær verða að vera jafnar að þunga og kynntar til leiks samhliða. Þegar biðin eftir efnahagsaðgerðum verður löng, eins og verið hefur, þá framkallar það þreytu, (Forseti hringir.) það framkallar jafnvel vonleysi og hefur jafnvel þau áhrif að skilningur á sóttvarnaaðgerðunum verður minni. (Forseti hringir.) Þannig að ég beini því til stjórnarinnar að huga betur að þessu atriði.