151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:24]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil enn þakka fyrir frumkvæðið að því að þessi umræða fari hér fram. Ég hef komið á fund velferðarnefndar a.m.k. tvisvar ef ekki þrisvar á þeim tíma sem liðið hefur frá því að faraldurinn nam hér land og er alltaf tilbúin til þess að koma á fund Alþingis um þessi mál. Ég er sammála öllum þeim athugasemdum og brýningum sem fram koma í máli hv. þingmanns, um mikilvægi þess að við gleymum ekki því mikilvæga og merkilega hlutverki þingsalarins að við erum líka málstofa. Við erum ekki bara vettvangur löggjafar og stefnumótunar, heldur líka vettvangur umræðu án þess að við séum að hugsa um umræðuna sem leið að einhverri tiltekinni niðurstöðu um eitt tiltekið, afmarkað þingmál. Við eigum að nota þingsalinn meira sem þá málstofu af því að það er flagg í sterku lýðræðisríki að gera það. Þannig að ég vil enn og aftur lýsa ánægju með þetta frumkvæði.

Það er rétt að aðhalds- og eftirlitshlutverk þingsins felst ekki síður í því að óska eftir að mál séu sett á dagskrá og þau séu rædd. Og það er líka rétt ábending, sem kom fram í inngangi mínum, að það færist meiri þreyta í umræðuna alla og almenningur setur sífellt fleiri spurningarmerki við aðgerðir. Það er eðlilegt og við eigum að taka því fagnandi. En við eigum að byggja á okkar sterku lýðræðishefð sem snýst um það að við séum óhrædd við að taka umræðuna og ræða málin, en um leið að við séum sammála um það, þegar niðurstaða liggur fyrir, að við snúum bökum saman í því að fara að þeim ákvörðunum sem þá liggja fyrir.

Ég vil líka aðeins nefna, af því að það er sá partur þar sem ráðherranum er nokkur vandi á höndum, þá tímapressu sem alltaf er í því að taka ákvarðanir og Páll Hreinsson fjallaði nokkuð um það í greinargerð sinni. Það er vinkill eða sjónarmið sem ég myndi líka gjarnan vilja ræða við þingið.