sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég er hjartanlega sammála því að þetta eru þau sjónarmið sem mestu máli skipta, þ.e. að fyrirvarinn sé eins mikill og nokkur kostur er. Við vitum t.d. að núverandi ráðstafanir verða að öllu óbreyttu í gildi til 17. nóvember, þ.e. að því gefnu að við náum þeim árangri sem við stefnum að. En þá þurfum við líka að vera tilbúin til að opna umræðuna eins fljótt og hægt er um það með hvaða hætti afléttingar yrðu gerðar og þá í hvaða röð o.s.frv. Ég hef alltaf talað fyrir því að við eigum að gera það eins hratt og við getum.
Ég vil nefna eitt atriði í tengslum við þessa umræðu varðandi gagnsæið af því að það er einn þáttur sem ég held að við getum sinnt enn betur. Við höfum alltaf talað um að mikilvægt sé að ráðstafanir byggist á upplýsingum og við getum talað um að við höfum mjög öfluga smitrakningu á Íslandi, við rekjum hvert einasta smit. En það er til umhugsunar að við þyrftum að hafa upplýsingar um smitrakningu og hvar dreifing smitsins er mest meira inni í umræðunni við almenning og fjölmiðla.