151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu og fagna því sem fram kom hjá hæstv. ráðherra að það væri reiknað með því að þetta verði viðhaft með reglubundnum hætti hér eftir. Það hefur vantað mikið upp á, að mínu mati, að Alþingi sé, með þeim hætti sem er nauðsynlegt, hluti af umræðunni um sóttvarnir.

Staðan er sú núna að rúmlega 1,2 milljónir manna hafa látist með Covid-vírusinn í sér á heimsvísu fram til dagsins í dag, sem er svipaður fjöldi og lætur lífið árlega í umferðarslysum á heimsvísu þannig að alvarleiki málsins er öllum ljós. Sóttvarnaaðgerðir setja samfélög víða á stig sem helst verður líkt við stöðu mála á stríðstímum.

Ég vil við þessa umræðu gagnrýna annars vegar það hversu lítið Alþingi hefur komið að umræðu um sjónarmið að baki ákvörðunum sem liggja fyrir og hins vegar að aðgerðum og í raun ákvörðunum hefur í miklum mæli verið útvistað til svokallaðs þríeykis, án þess að ég vilji neinu halla á þá ágætu vinnu sem þau hafa unnið enda er hlutverk þeirra að gera tillögur og meta aðgerðir út frá sóttvarnasjónarmiðum einum saman. Það er nefnilega kjarni málsins. Það er annarra að taka tillit til m.a. hinna efnahagslegu sjónarmiða. Ég hef áður komið inn á það hér í pontu að nauðsynlegt sé að horfa á fleiri þætti en bara Covid-tölfræðina. Efnahagsleg sjónarmið og sjónarmið um borgaraleg réttindi og hvernig þeim hefur verið vikið til hliðar skipta gríðarmiklu máli og þessa umræðu verðum við að taka inn í salinn.

Mig langar við þetta tækifæri að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur verið lagt sérstakt mat á hvaða áhrif frestun aðgerða hefur og aukin áhrif ýmiss konar, t.d. vegna geðrænna vandamála sem fylgja þeirri einangrun og þeim breyttu samfélagsháttum sem við nú lifum við, og hver kostnaðurinn er áætlaður af því fyrir heilbrigðiskerfið? Í öðru lagi: Hver telur ráðherrann að áhrifin verði á íslenskt heilbrigðiskerfi næstu árin ef (Forseti hringir.) verðmætasköpun efnahagskerfisins og þar með tekjur ríkissjóðs orsaka lægri framlög til heilbrigðismála?