151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnarráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið þó að mér þyki tónninn sérstakur og kannski ekki undirstrika sérstaklega mikinn vilja til að eiga samræður hér í pontu. En látum það nú liggja á milli hluta í bili. Mig langar til að fylgja svörum hæstv. ráðherra eftir að tvennu leyti. Í fyrsta lagi: Hefur komið til athugunar að gera samning við einkarekna þjónustuaðila á hinum ýmsu sviðum til að létta álagi af sjúkrahúsi Landspítalans? Í öðru lagi kom ráðherra ekki inn á það í fyrra svari sínu hver hún telur áhrifin verða á heilbrigðiskerfið til langs tíma ef núverandi aðgerðir orsaka það að tekjusköpun efnahagslífsins verður með varanlega minni og veikari hætti hér eftir en hingað til. Hver telur hæstv. ráðherra að áhrifin verði á heilbrigðiskerfið (Forseti hringir.) ef fram fer sem horfir að tekjuöflun ríkissjóðs verði veikari en hingað til?