sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Það er mat íslenskra stjórnvalda, og það er raunar mat stjórnvalda víða um heim, að þau grundvallarmannréttindi sem snúast um líf og heilsu komi alltaf fyrst. Við áttum okkur á því að slík forgangsröðun hefur áhrif á margvíslega starfsemi, hefur áhrif á atvinnulíf og hefur áhrif á efnahagslíf. Það er hins vegar mat okkar líka, okkar breiða mat, að ef við hirtum ekki um sóttvarnaaðgerðir í fyrsta sæti og líf og heilsu þá sætum við uppi með enn þá alvarlegri skaða, bæði á líf og heilsu en ekki síður einmitt á efnahags- og atvinnulíf.